Fara í efni

Málefni fjölskylduráðs, framkvæmd og skipulag funda

Málsnúmer 202010484

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 1. fundur - 20.10.2020

Fjölskylduráð fundar þrisvar í mánuði. Fastur fundartími verður á þriðjudögum kl. 13:00-15:00. Í meginatriðum er gert ráð fyrir að hver fundur fjalli um einn af þeim málaflokkum sem undir ráðið heyra, þ.e. málefni félagsþjónustu, fræðslumál og íþrótta- og æskulýðsmál.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fjölskylduráð Múlaþings - 6. fundur - 01.12.2020

Fyrirkomulag funda rætt og ákveðið að hver málaflokkur innan fjölskyldusviðs hefði að jafnaði forgang að ráðinu einu sinni í mánuði. Fundartími verður á þriðjudögum kl. 12:00-15:00.

Fjölskylduráð Múlaþings - 45. fundur - 14.06.2022

Fjölskylduráð fundar þrisvar í mánuði. Fastur fundartími verður á þriðjudögum kl. 12:30-15:00. Í meginatriðum er gert ráð fyrir að hver fundur fjalli um einn af þeim málaflokkum sem undir ráðið heyra, þ.e. málefni félagsþjónustu, fræðslumál og íþrótta- og æskulýðsmál.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?