Fara í efni

Djúpivogur - efsti hluti Borgarlands 46-54 - breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 202010573

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 2. fundur - 28.10.2020

Djúpivogur - Borgarland 46-54 - breyting á deiliskipulagi
Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir Borgarland 46-54 á Djúpavogi, dags. 31. júlí 2020, með síðari breytingum. Tillagan var kynnt íbúum Djúpavogshrepps, athugasemdafrestur var frá 31. ágúst til 28. september sl. og bárust engar athugasemdir. Umsögn Minjastofnunar liggur fyrir og eru ekki gerðar athugasemdir við breytinguna.

Páll Jakob Líndal skipulagsráðgjafi sat fundinn undir þessum lið.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu með vísan til 2. mgr. 43. gr. Skipulagslaga og vísar henni til heimastjórnar til staðfestingar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Djúpavogs - 2. fundur - 16.11.2020

Heimastjórn á Djúpavogi samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Borgarland 46-54 á Djúpavogi, dags. 31. júlí 2020, með síðari breytingum.
Getum við bætt efni þessarar síðu?