Fara í efni

Umsókn um framkvæmdaleyfi, Ljósleiðari að Núpi í Berufirði

Málsnúmer 202104259

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 22. fundur - 19.05.2021

Fyrir liggur umsókn frá Orkufjarskiptum hf. um framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara að Núpi í Berufirði.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi umsókn um framkvæmdaleyfi, en leggur til að útgáfa þess verði skilyrt við að framkvæmdaraðili afli staðfests samþykkis landeigenda á hverjum stað fyrir framkvæmdinni. Málinu er vísað til heimastjórnar Djúpavogs til afgreiðslu og minnt á að heimastjórn tekur einnig afstöðu til matsskyldu framkvæmda í þeim tilfellum sem framkvæmdir falla í c-flokk í reglugerð um mat á umhverfisáhrifum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Heimastjórn Djúpavogs - 13. fundur - 07.06.2021

Heimastjórn samþykkir fyrir sitt leyti umsókn um framkvæmdaleyfi.
Getum við bætt efni þessarar síðu?