Fara í efni

Umsókn um lóð, Seyðisfjörður, Austurvegur 19b

Málsnúmer 202106119

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 26. fundur - 23.06.2021

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur umsókn um lóð við Austurveg 19B á Seyðisfirði.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur framkvæmda- og umhverfismálastjóra að láta ganga frá úthlutun lóðarinnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 177. fundur - 16.03.2026

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur að taka ákvörðun um hvort skuli framlengja úthlutun lóðar að Austurvegi 19 (L232716) og Austurvegi 19b (L232717) á Seyðisfirði.
Málsaðili fékk lóðunum úthlutað í júní 2021, meðal annars fyrir endurbyggingu Breiðabliks, sem eyðilagðist í aurskriðunum 2020.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan í fyrirliggjandi gögn um áætlaða framvindu verkefnisins leggur umhverfis- og framkvæmdaráð til við skipulagsfulltrúa, að framlengja lóðaúthlutun um 6 mánuði frá og með deginum í dag, þ.e. 16. mars 2026.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?