Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

177. fundur 11. mars 2026 kl. 08:30 - 11:29 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Þórhallur Borgarson varaformaður
  • Guðný Margrét Hjaltadóttir varamaður
  • Ásdís Hafrún Benediktsdóttir aðalmaður
  • Eiður Gísli Guðmundsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Pétur Heimisson aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
  • Sóley Valdimarsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Hugrún Hjálmarsdóttir, sviðsstjóri framkvæmda, vék af fundi undir liðum 2. og 3.

Eiður Gísli Guðmundsson, fulltrúi B-lista, sat fundinn undir liðum 1. og 11.

1.Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045

Málsnúmer 202208083Vakta málsnúmer

Auglýsing nýs Aðalskipulags Múlaþins 2025-2045 stóð yfir frá 19. desember 2025 til 11. febrúar 2026. 67 umsagnir bárust og liggur fyrir samantekt á þeim ásamt drögum að viðbrögðum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að brugðist verði við athugasemdum í samræmi við fyrirliggjandi minnisblað og viðeigandi breytingar gerðar á skipulagsgögnum. Umfang breytinganna kalla á að skipulagstillagan verði auglýst að nýju.

Samþykkt með 4 atkvæðum, 3 á móti (PH, ÁMS, ÁHB).


PH og ÁMS (V-lista) og ÁHB (L-lista) lögðu fram eftirfarandi bókun:
Meirihluti umhverfis- og framkvæmdráðs ætlar nú að fella niður hverfisvernd þá sem hefur verið á Hofsdal, Tungu, Hofsá, Geithellnadal og Þrándarjökli frá árinu 2006. Fyrir þessari ákvörðun liggja engin málefnaleg rök og engin greining hefur farið fram á hvað í breytingunni felst. Þau rök að svæðið sé á C hluta náttúruminjaskrár og njóti þar af leiðandi verndar standast ekki, engin verndarákvæði eru um þær náttúruminjar skv. lögum en þegar hverfisvernd var sett á þetta svæði var stefnan sú að hafa aukin verndarákvæði á því á meðan unnið væri áfram með hugmyndir um friðlýsingar á svæðinu.
Í aðdraganda stofnunar Múlaþings var lögð áhersla á og því lofað að hin ólíku sveitarfélög sem sameinuðust fengju öll að halda sérkennum sínum. Við teljum umrædda hverfisvernd meðal slíkra sérkenna. Sú ákvörðun að fella hana niður gengur þvert á þá stefnumörkun og loforð þeirra sveitarstjórna sem að sameiningunni komu sem og þeirra sveitarstjórna sem höfðu setið í fyrrum Djúpavogshreppi, frá gerð gildandi aðalskipulags á svæðinu. Það er leitt að sjá að meirihlutinn ætlar nú að ganga í spor þess stjórnvalds hefur sem mest verið gagnrýnt fyrir að virða ekki ákvarðanir fyrirrennara sinna.

HKH, áheyrnarfulltrúi (M-lista) lagði fram eftirfarandi bókun:
Í samþykktri aðalskipulagsbreyting frá síðasta ári var valið að fara svo kallaða Suður-leið frá gangnamunna Fjarðarheiðarganga Héraðsmegin í stað svo nefndrar Norður-leiðar sem M-listinn barðist fyrir. Nú leynist ekki lengur hversu rangt og illa ígrundað leiðarvalið á Suðurleið var, þegar kemur að vandræðagang við að finna leið/tengingu fyrir nýjan Borgarfjarðarveg inn á Hringveg 1.
Þetta kemur hrópandi fram í athugasemd Vegagerðarinnar sem og annari athugasemd frá hagsmunaaðila.
Það má lesa út úr athugasemd Vegagerðarinnar að hún ætlar ekki að bera kostnað af nýrri tengingu milli Hringvegar 1 og Borgafjarðarvegar, heldur þarf sveitarfélagið að gera það með tilheyrandi brúargerð yfir Eyvindará. Hefði Norðurleiðin orðið fyrir valinu, væri þetta vandamál ekki til staðar nú og þegar að fullu leyst skipulagslega og Vegagerðin borið þennan kostnað sjálfkrafa.

2.Deiliskipulagsbreyting, Íbúðabyggð við Unalæk, Álfagata 4

Málsnúmer 202512037Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Unalækjar á Völlum vegna byggingaráforma á Álfagötu 4. Tillagan er unnin af Birni Sveinssyni fyrir hönd lóðarhafa. Skipulagstillagan gerir ráð fyrir því að breyta skilmálum svo reisa megi á lóðinni, til viðbótar við íbúðarhús, 160 m2 verkfærageymslu og 50m2 gestahús. Heildarbyggingarmagn helst óbreytt.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi skipulagsbreytingu og málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykkir ráðið, með vísan til gr. 5.9.3. í skipulagsreglugerð, að fallið verði frá grenndarkynningu breytinganna.

Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl:

3.Umsókn um byggingarheimild, Versalir 5, 701

Málsnúmer 202601232Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um heimild til frávika frá skipulagsskilmálum á lóðinni Versalir 5(L231564). Fyrirhuguð byggingaráform gera ráð fyrir byggingu 150m2 geymslu sem er 50m2 umfram skilmála gildandi deiliskipulags og auk þess er fyrirhugaður þaklitur ekki í samræmi við skipulagsskilmála.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir, með vísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að víkja frá kröfum 1. og 2. mgr. sömu greinar um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu vegna fyrirliggjandi umsóknar um byggingarheimild. Er það gert með vísan til þess að um svo óveruleg frávik sé að ræða í þessu tilviki að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Ráðið leggur jafnframt áherslu á að heildarbyggingarmagn á lóðinni haldist óbreytt frá gildandi skipulagsskilmálum.

Samþykkt samhljóða.

4.Umsókn um byggingarheimild, Suðurgata 2B, 710

Málsnúmer 202601074Vakta málsnúmer

Tekin er fyrir að nýju umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Suðurgötu 2b (L235241) á Seyðisfirði.
Undirritað samþykki lóðarhafa við Suðurgötu 2a liggur einnig fyrir. Áformin eru í samræmi við aðalskipulag en ekkert deiliskipulag er í gildi af svæðinu. Fyrir ráðinu liggur að taka afstöðu til grenndarkynningar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsaðili hefur með símtali fallið frá innsendu erindi þar sem óskað var eftir nýrri innkeyrslu að húsinu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan í fyrirliggjandi samþykki aðliggjandi lóðarhafa samþykkir umhverfis- og framkvæmdaráð að falla frá grenndarkynningu og vísar málinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Samþykkt samhljóða.

5.Umsókn um lóð, Lónsleira 2-4

Málsnúmer 202602238Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn frá Helluhyl ehf. um lóðina Lónsleira 2-4 á Seyðisfirði ásamt heimild til breytinga á deiliskipulagi þar sem lóðin er minnkuð.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð telur ekki tímabært að gera breytingu á deiliskipulagi svæðisins að svo stöddu. Ákvörðunin byggir á því að starfshópur um uppbyggingu atvinnulífs er með til skoðunar fjölbreyttar hugmyndir um framtíðaruppbyggingu á reitnum, og ekki þykir rétt að ráðast í breytingu á skipulagi fyrr en niðurstöður þeirrar vinnu liggja fyrir. Á sömu forsendum er ekki hægt að úthluta lóðinni á þessum tímapunkti.
Ráðið beinir því til verkefnastjóra skipulagsmála að vinna tillögu að þeim lóðum sem hægt er að setja á lista yfir lausar lóðir við Lónsleiru á Seyðisfirði.

Samþykkt samhljóða.

6.Umsókn um lóð, Bláargerði 51-53

Málsnúmer 202603030Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn frá Búðingar ehf. um að fá að byggja fjögurra íbúða raðhús á tveimur einbýlishúsalóðum við Bláargerði 51 og 53 á Egilsstöðum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi Suðursvæðis í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin verði grenndarkynnt fyrir fasteignaeigendum við Bláargerði 39, 41, 47, 49, 55, 57, 59 og 61 í samræmi við gr. 5.8.2 í skipulagsreglugerð. Málið verður tekið fyrir að nýju að grenndarkynningu lokinni.

Samþykkt samhljóða.

7.Umsókn um lóð, Seyðisfjörður, Austurvegur 19b

Málsnúmer 202106119Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur að taka ákvörðun um hvort skuli framlengja úthlutun lóðar að Austurvegi 19 (L232716) og Austurvegi 19b (L232717) á Seyðisfirði.
Málsaðili fékk lóðunum úthlutað í júní 2021, meðal annars fyrir endurbyggingu Breiðabliks, sem eyðilagðist í aurskriðunum 2020.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan í fyrirliggjandi gögn um áætlaða framvindu verkefnisins leggur umhverfis- og framkvæmdaráð til við skipulagsfulltrúa, að framlengja lóðaúthlutun um 6 mánuði frá og með deginum í dag, þ.e. 16. mars 2026.

Samþykkt samhljóða.

8.Samkomulag um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis við Fífutún á Egilsstöðum

Málsnúmer 202506181Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Jöklar fasteignafélag ehf., þar sem óskað er eftir breytingu á ákvæðum samkomulags um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis við Fífutún sem undirritað var í júlí 2025. Óskað er eftir því að í stað þess að byggja tvö 7 íbúða fjölbýlishús á Fífutúni 4 og 6 verði lóðirnar sameinaðar og þar heimilt að reisa raðhús á einni hæð með allt að 12 íbúðum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi erindi og felur skipulagsfulltrúa að láta vinna breytingu á deiliskipulagi svæðisins vegna Fífutúns 4 og 6.

Samþykkt samhljóða.

9.Aðstaða fyrir víkingagarð á Seyðisfirði

Málsnúmer 202510043Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur að taka afstöðu til tímabundinnar nýtingar byggingarlóðarinnar Búðarleiru 7, á Seyðisfirði, fyrir Víkingagarð.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð heimilar eftirfarandi umsókn um afnot af lóð, með þeim formerkjum að málshafi nýti eingöngu eina lóð, þ.e. Búðarleira 7, og heimildin nær til ákveðins tímabils, 15. apríl - 1. september.
Ráðið áréttar að málsaðili og/eða ábyrgðaraðili beri fullan kostnað að því að hreinsa svæðið að tímabili loknu.

Samþykkt samhljóða.

10.Umsagnarbeiðni um 499. mál - Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála

Málsnúmer 202603041Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggja drög frá 157. löggjafarþingi 2025-2026, dagsett 5. mars 2026, ósk um umsögn vegna breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum, skriðuföllum og um breytingu á lögum um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála.
Umsagnarfrestur er til og með 19. mars nk.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur formanni ráðsins, skipulagsfulltrúa og sviðsstjóra framkvæmda að skila inn fyrirliggjandi umsögn.

Samþykkt samhljóða.

11.Umsögn vegna byggingarleyfis fyrir sjókvíeldi í Seyðisfirði

Málsnúmer 202603003Vakta málsnúmer

Í upphafi dagskrárliðar nr 11. vakti Ásdís Hafrún Benediktsdóttir (ÁHB) máls á mögulegu vanhæfi sínu undir málslið 11, og bar JB upp tillögu til atkvæðagreiðslu.
Vanhæfið var fellt með 5 atkvæðum, 2 sátu hjá (ÁMS, ÁHB).

Fyrir liggur umsagnarbeiðni, dags. 24. febrúar 2026, frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun vegna umsóknar Kaldvíkur hf. um byggingarleyfi fyrir sjókvíum á tveimur eldissvæðum í Seyðisfirði; Sörlastaðavík og Selstaðavík.
Umsagnarfrestur er til og með 18. mars nk.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að umsögn og felur starfsmönnum að koma henni á framfæri við Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

Samþykkt samhljóða.

12.Framtíðaruppbygging Íþróttamiðstöðvar á Egilsstöðum

Málsnúmer 202511028Vakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar fundargerð Starfshóps um framtíðaruppbyggingu Íþróttamiðstöðvarinnar á Egilsstöðum, dagsett 25. febrúar sl.
Lagt fram til kynningar.

13.Fundargerðir svæðisráðs austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs 2026

Málsnúmer 202603016Vakta málsnúmer

Lagðar eru fram til kynningar fundagerðir frá 135. og 136. svæðisráðs austursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs dags. 11.12.2025 og 18.02.2026.
Lagt fram til kynningar.

14.Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa Múlaþings - 12

Málsnúmer 2603001FVakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð frá 12. afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa Múlaþings, dagsett 3.3.2026.
Lagt fram til kynningar.

15.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Múlaþings - 36

Málsnúmer 2602022FVakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð frá 36. afgreiðslufundi byggingafulltrúa Múlaþings, dagsett 11.03.2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:29.

Getum við bætt efni þessarar síðu?