Fara í efni

Umsókn um byggingarheimild, Vesturvegur Kúahagi, 711

Málsnúmer 202505255

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 155. fundur - 30.06.2025

Fyrir liggur umsókn um byggingarheimild fyrir byggingu 120m2 skemmu á lóð Golfklúbbs Seyðisfjarðar, Vesturvegur Kúahagi (L155299). Fyrirhuguð áform eru í samræmi við stefnu aðalskipulags en ekkert deiliskipulag er í gildi af svæðinu og liggur fyrir ráðinu að taka afstöðu til grenndarkynningar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og með hliðsjón af því ekki er líklegt að áformin hafi veruleg grenndaráhrif samþykkir umhverfis- og framkvæmdaráð að falla frá grenndarkynningu og vísar málinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?