Fara í efni

Tómstundaframlag Múlaþings

Málsnúmer 202511244

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 147. fundur - 25.11.2025

Fjölskylduráð leggur til að tómstundaframlag fyrir börn og ungmenni í Múlaþingi verði hækkað úr 35.000 kr. í 45.000 kr. fyrir árið 2026. Málinu er vísað til byggðaráðs í tengslum við fjárhagsáætlunargerð.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fjölskylduráð Múlaþings - 172. fundur - 26.10.2026

Í málefnasamningi B- og D-lista fyrir kjörtímabilið 2026-2030 kemur fram að hækka skuli frístundastyrk um að lágmarki 10.000 krónur í áföngum á kjörtímabilinu. Styrkurinn nefndist tómstundastyrkur hjá Múlaþingi. Fyrir liggur tillaga um fyrsta áfanga hækkunarinnar.
Fjölskylduráð samþykkir að tómstundastyrkur Múlaþings hækki um 2.500 krónur frá og með 1. janúar 2027 og verður þá 47.500 krónur. Málinu er vísað til sveitarstjórnar til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?