Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

172. fundur 26. október 2026 kl. 09:00 - 12:20 í Fjarðarborg, Borgarfirði
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Herdís Magna Gunnarsdóttir aðalmaður
  • Björg Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Guðgeir Einarsson aðalmaður
  • Erlingur Hjörvar Guðjónsson aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Guðný Lára Guðrúnardóttir aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
  • Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar
  • Gunnlaugur Aðalbjarnarson deildarstjóri íþrótta og tómstunda
Fundargerð ritaði: Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir Sviðstjóri menntunar og lýðheilsu
Áheyrnarfulltrúar grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla, þau Þórunn Hrund Óladóttir, Karen Sveinsdóttir, Agla Þorsteinsdóttir, Hugrún Malmquist Jónsdóttir, Rósa Dóra Sigurðardóttir og Sóley Þrastardóttir sátu fundinn undir 1. dagskrárlið. Skólastjórnendurnir Viðar Jónsson, Ásgrímur Ingi Arngrímsson, Margrét Dögg Guðgeirsdóttir, Guðrún Sigríður Sigurðardóttir, Sigríður Herdís Pálsdóttir og Guðmunda Vala Jónasdóttir, sátu einnig fundinn undir 1. dagskrárlið. Þórunn Hrund Óladóttir, skólastjóri Seyðisfjarðarskóla, er jafnframt talin meðal áheyrnarfulltrúa hér að framan.

1.Fjárhagsáætlun fræðslumála 2027

Málsnúmer 202610172Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fjárhagsáætlun fræðslumála fyrir árið 2027.
Fjölskylduráð samþykkir framlagða fjárhagsáætlun fyrir fræðslumál og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Fjárhagsáætlun æskulýðs- og íþróttamála 2027

Málsnúmer 202610173Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fjárhagsáætlun æskulýðs- og íþróttamála fyrir árið 2027.
Fjölskylduráð samþykkir framlagða fjárhagsáætlun æskulýðs- og íþróttamála og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Fjárhagsáætlun velferðar 2027

Málsnúmer 202610174Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fjárhagsáætlun velferðar fyrir árið 2027.
Fjölskylduráð samþykkir framlagða fjárhagsáætlun velferðar og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Tómstundaframlag Múlaþings

Málsnúmer 202511244Vakta málsnúmer

Í málefnasamningi B- og D-lista fyrir kjörtímabilið 2026-2030 kemur fram að hækka skuli frístundastyrk um að lágmarki 10.000 krónur í áföngum á kjörtímabilinu. Styrkurinn nefndist tómstundastyrkur hjá Múlaþingi. Fyrir liggur tillaga um fyrsta áfanga hækkunarinnar.
Fjölskylduráð samþykkir að tómstundastyrkur Múlaþings hækki um 2.500 krónur frá og með 1. janúar 2027 og verður þá 47.500 krónur. Málinu er vísað til sveitarstjórnar til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Íþrótta og tómstundastyrkir Múlaþings, seinni úthlutun 2026

Málsnúmer 202609169Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að hefja yfirferð og mat á umsóknum um íþrótta- og tómstundastyrki Múlaþings en umsóknarfrestur um styrkina rann út 15. október 2026.
Tillaga að úthlutun styrkja verður lögð fram á næsta fundi ráðsins.

6.Sundhöll Seyðisfjarðar, sumaropnun

Málsnúmer 202608167Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun heimastjórnar Seyðisfjarðar, dagsett 3. september 2026, þar sem áherslum heimastjórnar um lengri opnunartíma Sundhallar Seyðisfjarðar næsta sumar er vísað til fjölskylduráðs. Jafnframt hvetur heimastjórn fjölskylduráð til að móta framtíðarsýn um sundaðstöðu á Seyðisfirði en Sundhöll Seyðisfjarðar fagnar 80 ára afmæli næsta sumar.
Fjölskylduráð samþykkir að lengja opnunartíma Sundhallar Seyðisfjarðar um helgar yfir sumartímann og felur deildarstjóra íþrótta og æskulýðsmála að koma með tillögu þar um. Jafnframt felur ráðið sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu að útbúa erindisbréf fyrir starfshóp sem hafi það hlutverk að móta framtíðarsýn um sundaðstöðu á Seyðisfirði.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

7.Íslenska æskulýðsrannsóknin

Málsnúmer 202610004Vakta málsnúmer

Þórunn Ólafsdóttir, verkefnastjóri á fjölskyldusviði, kynnti helstu niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ), sem Menntavísindasvið Háskóla Íslands framkvæmir fyrir mennta- og barnamálaráðuneytið.
Málinu frestað

8.Skýrsla sviðsstjóra fjölskyldusviðs

Málsnúmer 202512222Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrsla sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu.
Málinu frestað til næsta fundar.

Fundi slitið - kl. 12:20.

Getum við bætt efni þessarar síðu?