Fara í efni

Geymslusvæði

Málsnúmer 202512211

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 65. fundur - 08.01.2026

Á fundi heimastjórnar Fljótsdalshéraðs sem haldinn var 4. desember 2025 var starfsmanni falið að stofna mál um einstök atriði sem fram komu á opnum fundum heimastjórnar, sem haldnir voru í Brúarási, að Eiðum (gamla barnaskólanum) og í Þingmúla í Valaskjálf 21. og 22. október 2025, í samræmi við umræðu á fundinum og leggja fyrir næstu fundi heimastjórnar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Fljótsdalshéraðs vísar minnisblaði um geymslusvæði til umfjöllunar til umhverfis- og framkvæmdaráðs.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 172. fundur - 19.01.2026

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur erindi, sem lagt var fyrir Heimastjórn Fljótsdalshéraðs á opnum fundum, sem haldnir voru í Brúarási, að Eiðum (gamla barnaskólanum) og í Þingmúla í Valaskjálf 21. og 22. október 2025.
Vísar heimastjórn Fljótsdalshéraðs meðfylgjandi minnisblaði til umfjöllunar hjá ráðinu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar sviðsstjóra framkvæmda, Hugrúnu Hjálmarsdóttur, fyrir yfirferðina á málinu.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?