Fara í efni

Ósk um umsögn, matsáætlun, Vindorkuver á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi

Málsnúmer 202601114

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 173. fundur - 02.02.2026

Skipulagsstofnun leitar umsagna umsagnaraðila vegna matsáætlana fyrir framkvæmdir sem eru háðar mati á umhverfisáhrifum á grundvelli 21. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Óskað er eftir því að Umhverfis- og framkvæmdaráð gefi umsögn um matsáætlun vegna fyrirhugaðrar vindorkuvirkjunar á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi, sunnan við Þórshöfn á Norðausturlandi.
Í umsögn umsagnaraðila skal koma fram hvort umsagnaraðili hafi athugasemdir við það hvernig framkvæmdaraðili hyggst vinna að umhverfismati framkvæmdarinnar, út frá sínu starfssviði, svo sem um skilgreiningu valkosta, gagnaöflun, úrvinnslu gagna, umhverfismat og framsetningu umhverfismatsskýrslu. Sjá nánar um málið hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/1

Umsagnarfrestur er til og með 2. febrúar nk.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Á þeirri forsendu að fyrirhuguð breyting varðar ekki hagsmuni Múlaþings gerir umhverfis- og framkvæmdaráð ekki athugasemd við fyrirliggjandi áform.

Samþykkt með 4 atkvæðum, 1 situr hjá (ÁHB) og 2 á móti (PH og ÞÓ).

Fulltrúar V-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:
Við fulltrúar VG leggjumst eindregið gegn umræddum vindorkukosti eins og almennt vindorkuvirkjunum á landi á meðan ekki hafa verið samþykkt lög og reglur um hvar og hvar ekki megi mögulega virkja vind. Þó landrými sé mikið á Íslandi er engu að síður brýnt að gaumgæfa vel til hvers land er notað. Andi náttúruverndarlaga er ekki síst sá, að leyfa landi og náttúru að þróast á sínum forsendum, svo sem frekast er kostur. Það gríðarlega jarðrask sem fylgir vindorkugörðum, s.s. tengt vegalagningu og undirstöðumannvirkjum felur í sér að ákvörðun um vindorkukost sem þennan, er um leið ákvörðun um að fórna hluta búsvæða ýmissa lífvera, ekki síst örsmárra og þar með spillingu vistkerfa. Að stórum hluta eru þær fórnir varanlegar og ekki afturkræfar. Þá eru þessi áform í algjörri andstöðu við þá staðreynd að á Langanesi eru verndarsvæði og til skoðunar hefur jafnvel verið möguleg stofnun þjóðgarðs. Með vísan í síðastnefnd atriði má benda á skjal frá 2020 "Langanes Úttekt á friðlýsingakostum" á þessum hlekk: https://www.langanesbyggd.is/static/files/Umhverfismal/langanes_fridlysingakostir.pdf
Þá skal nefnt að á líftíma vindorkuvers svo nærri þéttbýli sem hér um ræðir mun orkuverið nær örugglega spilla hvoru tveggja hljóð- og sjónvist með neikvæðum áhrifum á líðan fólks í nágrenninu.
Síðast en ekki síst erum við ósammála því "að fyrirhuguð breyting varðar ekki hagsmuni Múlaþings" eins og segir í bókun meirihlutans m.a. og ekki síst vegna þess að enn hafa hvorki verið samþykkt lög né reglur um hvar og hvar ekki skuli heimilt að virkja vind.
Getum við bætt efni þessarar síðu?