Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

173. fundur 02. febrúar 2026 kl. 08:30 - 11:31 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Þórhallur Borgarson varaformaður
  • Björgvin Stefán Pétursson aðalmaður
  • Ásdís Hafrún Benediktsdóttir aðalmaður
  • Eiður Gísli Guðmundsson aðalmaður
  • Þórunn Hrund Óladóttir varamaður
  • Pétur Heimisson aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Eiður Ragnarsson, staðgengill hafnastjóra, og Rúnar Gunnarsson, yfirhafnavörður, sátu fundinn undir liðum 1.-4.
Aðalheiður Borgþórsdóttir, markaðsstjóri hafna, situr fundinn undir liðum 1.-2.
Sóley Valdimarsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála, situr fundinn undir liðum 6.-9.
Stefán Aspar Stefánsson, verkefnastjóri umhverfismála, situr fundinn undir lið 10.
Vordís Svala Jónsdóttir og Rúnar Matthíasson, verkefnastjórar framkvæmdamála, sitja fundinn undir liðum 11. og 12.
Þórunn Hrund Óladóttir, varamaður V-listans, vék af fundi undir liðum 8.-13.

1.Skýrsla hafnastjóra, 2026

Málsnúmer 202601063Vakta málsnúmer

Staðgengill hafnastjóra og markaðsstjóri hafna fara yfir málefni hafna Múlaþings og kynningu frá Cruise Lines International Association.
Lagt fram til kynningar.

2.Fundargerðir stjórnar Hafnasamband Íslands 2026

Málsnúmer 202601221Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð frá 476., 477., 478. og 479. fundi Hafnasambands Íslands.
Lagt fram til kynningar.

3.Umsagnarbeiðni um Samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030 til

Málsnúmer 202601146Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur, frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, til umsagnar 322. mál, Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040, ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030.
Frestur til að senda inn umsókn er til og með 9. febrúar nk.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkja fyrir sitt leyti umsögnina er varðar hafnamál, í samræmi við umræður á fundinum.
Ráðið felur sveitastjóra að skila inn umsögn.

Samþykkt samhljóða.

4.Samráðsgátt. Drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga.

Málsnúmer 202601222Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggja drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga sem fyrirhugað er að komi í stað laga um vitamál nr. 132/1999, dagsett 23. janúar 2026.

Óskað er eftir því að umhverfis- og framkvæmdaráð gefi umsögn um frumvarp þetta er varðar breytingu á ofangreindum lögum.
Umsagnarfrestur er til og með 8. febrúar 2026.

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um málið hér:
https://island.is/samradsgatt/mal/4162
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur hafnastjóra að skila inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

5.Samfélagsverkefni heimastjórna 2026

Málsnúmer 202601217Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur að fjalla um útfærslu á samfélagsverkefnum heimastjórna fyrir árið 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að óska eftir hugmyndum heimastjórna að samfélagsverkefnum í samræmi við fjárhagsáætlun og umræður á fundinum og felur sviðsstjóra framkvæmda að fylgja málinu eftir til formanna heimastjórna. Skipting fjármuna verður óbreytt frá fyrri árum þegar heimastjórnir Borgarfjarðar, Djúpavogs og Seyðisfjarðar fengu 2 milljónir hver til umráða og heimastjórn Fljótsdalshéraðs 4 milljónir.

Samþykkt samhljóða.

6.Ósk um umsögn, matsáætlun, Vindorkuver á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi

Málsnúmer 202601114Vakta málsnúmer

Skipulagsstofnun leitar umsagna umsagnaraðila vegna matsáætlana fyrir framkvæmdir sem eru háðar mati á umhverfisáhrifum á grundvelli 21. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Óskað er eftir því að Umhverfis- og framkvæmdaráð gefi umsögn um matsáætlun vegna fyrirhugaðrar vindorkuvirkjunar á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi, sunnan við Þórshöfn á Norðausturlandi.
Í umsögn umsagnaraðila skal koma fram hvort umsagnaraðili hafi athugasemdir við það hvernig framkvæmdaraðili hyggst vinna að umhverfismati framkvæmdarinnar, út frá sínu starfssviði, svo sem um skilgreiningu valkosta, gagnaöflun, úrvinnslu gagna, umhverfismat og framsetningu umhverfismatsskýrslu. Sjá nánar um málið hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/1

Umsagnarfrestur er til og með 2. febrúar nk.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Á þeirri forsendu að fyrirhuguð breyting varðar ekki hagsmuni Múlaþings gerir umhverfis- og framkvæmdaráð ekki athugasemd við fyrirliggjandi áform.

Samþykkt með 4 atkvæðum, 1 situr hjá (ÁHB) og 2 á móti (PH og ÞÓ).

Fulltrúar V-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:
Við fulltrúar VG leggjumst eindregið gegn umræddum vindorkukosti eins og almennt vindorkuvirkjunum á landi á meðan ekki hafa verið samþykkt lög og reglur um hvar og hvar ekki megi mögulega virkja vind. Þó landrými sé mikið á Íslandi er engu að síður brýnt að gaumgæfa vel til hvers land er notað. Andi náttúruverndarlaga er ekki síst sá, að leyfa landi og náttúru að þróast á sínum forsendum, svo sem frekast er kostur. Það gríðarlega jarðrask sem fylgir vindorkugörðum, s.s. tengt vegalagningu og undirstöðumannvirkjum felur í sér að ákvörðun um vindorkukost sem þennan, er um leið ákvörðun um að fórna hluta búsvæða ýmissa lífvera, ekki síst örsmárra og þar með spillingu vistkerfa. Að stórum hluta eru þær fórnir varanlegar og ekki afturkræfar. Þá eru þessi áform í algjörri andstöðu við þá staðreynd að á Langanesi eru verndarsvæði og til skoðunar hefur jafnvel verið möguleg stofnun þjóðgarðs. Með vísan í síðastnefnd atriði má benda á skjal frá 2020 "Langanes Úttekt á friðlýsingakostum" á þessum hlekk: https://www.langanesbyggd.is/static/files/Umhverfismal/langanes_fridlysingakostir.pdf
Þá skal nefnt að á líftíma vindorkuvers svo nærri þéttbýli sem hér um ræðir mun orkuverið nær örugglega spilla hvoru tveggja hljóð- og sjónvist með neikvæðum áhrifum á líðan fólks í nágrenninu.
Síðast en ekki síst erum við ósammála því "að fyrirhuguð breyting varðar ekki hagsmuni Múlaþings" eins og segir í bókun meirihlutans m.a. og ekki síst vegna þess að enn hafa hvorki verið samþykkt lög né reglur um hvar og hvar ekki skuli heimilt að virkja vind.

7.Deiliskipulag, Gilsárvirkjun

Málsnúmer 202401135Vakta málsnúmer

Kynningu vinnslutillögu vegna nýs deiliskipulags Gilsárvirkjunar lauk þann 13. janúar síðastliðinn. Fyrir liggur samantekt á umsögnum sem bárust ásamt viðbrögðum við þeim.
Janframt liggur fyrir skipulagstillaga til auglýsingar, dags. 28. janúar 2026, sett fram í greinargerð og á uppdrætti.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Í upphafi máls vöktu Ásdís Hafrún Benediktsdóttir (ÁHB) og Þórhallur Borgarson (ÞB) máls á vanhæfi sínu undir málslið 7. ÁHB og ÞB gerðu grein fyrir vanhæfi sínu og bar JB upp tillögu til atkvæðagreiðslu. Vanhæfið var samþykkt samhljóða og véku ÁHB og ÞB af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi skipulagstillögu og leggur til við heimastjórn Fljótsdalshéraðs að hún verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

Samþykkt með 3 atkvæðum, 2 á móti (PH og ÞÓ).

Fulltrúar V-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar VG hafa fram að þessu stutt skoðun á mögulegri Gilsárvirkjun. Fyrirliggjandi gögn nú eru hins vegar svo andstæð hag náttúru og sérlega vatnalífríkis að óábyrgt er að styðja þennan virkjunarkost. Forsenda þess að geta mögulega stutt frekari skoðun virkjunar í Gilsá er að Orkusalan ehf. leggi fram verndaráætlun vegna hins staðbundna laxastofns með ekki síst nákvæmri skilgreiningu mótvægisaðgerða og áhrifa þeirra eða hreinlega aðra valkosti til virkjunar í ánni.
Að baki þessu mati okkar liggur sérstaklega álit Skipulagsstofnunar um umhverfismat virkjunarinnar dags. 12.11. 2025. Það álit er um MJÖG afgerandi hvað varðar ógn Gilsárvirkjunar við náttúru og lífríki. Umsögnin verður ekki túlkuð með öðrum hætti en að áformuð virkjun, að meðtöldum valkosti B, hafi í för með sér alvarlegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar fyrir lífríki í ánni og ekki er hægt að treysta á að mögulegar enn óskilgreindar mótvægisaðgerðir, breyti því nægilega. Stofnunin segir m.a. "...þær breytingar sem verða á búsvæðum vatnalífvera í Gilsá neðan stöðvarhúss við dægurmiðlun kunni að leiða til þess að laxastofn árinnar nái ekki að viðhalda sér lengur. Að mati Skipulagsstofnunar felur það í sér óafturkræft tap á líffræðilegri fjölbreytni, enda gengur það gegn verndarmarkmiðum laga um náttúruvernd auk þess sem um er að ræða tegund sem flokkuð er í yfirvofandi hættu á válista Alþjóða náttúruverndarsambandsins (IUCN)3." Enn fremur segir að Skipulagsstofnun telji "að áhrifin geti verið verulega neikvæð, einkum á svæðum næst stöðvarhúsi en viðbúið er að neikvæðra áhrifa muni gæta allt til árósa þar sem Selfljót rennur út í Héraðsflóa. Telur stofnunin að valkostur B geti einnig haft verulega neikvæð áhrif neðan stöðvarhúss þó áhrif hans verði heldur minni en aðalvalkostar."
Þá skal, með vísan í framangreint, áréttað að báðum valkosum núverandi virkjunaráforma munu vafalítið fylgja neikvæð áhrif á afkomu þeirra sem hafa haft tekjur af veiði og sömuleiðis neikvæð áhrif á upplifun þeirra sem veiða á svæðinu. Hvoru tveggja þessi áhrif ná langt út fyrir áformað virkjunarsvæði.

8.Umsókn um skráningu landeigna í fasteignaskrá, Hánefsstaðir 1

Málsnúmer 202601209Vakta málsnúmer

Fyrir liggur merkjalýsing ásamt umsókn um uppskiptingu lands úr jörðinni Hánefsstaðir (L154850). Stofna á 2294 m2. lóð sem fær staðfangið Hánefsstaðir 1.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

9.Húsnæðisáætlun Múlaþings 2026

Málsnúmer 202510065Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að endurskoðaðri húsnæðisáætlun Múlaþings fyrir árið 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir endurskoðaða húsnæðisáætlun Múlaþings til næstu 10 ára og vísar henni til staðfestingar hjá sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

10.Starfshópur um gerð loftslagsstefnu fyrir Múlaþing

Málsnúmer 202110188Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri umhverfismála leggur fyrir minnisblað um gerð loftslagsstefnu fyrir Múlaþing.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða.

11.Fasteignir Múlaþings, viðhaldsáætlun

Málsnúmer 202312202Vakta málsnúmer

Verkefnastjórar framkvæmdamála kynna drög að viðhaldsáætlun ársins 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi viðhaldsáætlun fyrir árið 2026.

Samþykkt samhljóða.

12.Reglur fyrir leigjendur íbúðarhúsnæðis í eigu sveitarfélagsins

Málsnúmer 202511149Vakta málsnúmer

Tekið er fyrir að nýju erindi er varðar drög að "Húsreglum fyrir leigjendur" í leiguhúsnæði í eigu sveitarfélagsins Múlaþings.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar þeim til samþykktar hjá sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

13.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Múlaþings - 35

Málsnúmer 2601019FVakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar frá 35. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Múlaþings.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:31.

Getum við bætt efni þessarar síðu?