Fara í efni

Umsagnarbeiðni um framkvæmdir við Þjóðveginn yfir Öxi, mál 329 frá nefndar-og greiningarsvið Alþingis

Málsnúmer 202601218

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 178. fundur - 03.02.2026

Fyrir liggur til umsagnar frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, í umsagnagátt Alþingis, tillaga til þingsályktunar um að hefja framkvæmdir við þjóðveginn yfir Öxi. Frumvarpið er lagt fram af þremur fulltrúum Miðflokksins. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 11. febrúar 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings tekur undir það sem fram kemur í þingsályktunartillögunni um mikilvægi þess að framkvæmdir við heilsársveg yfir Öxi hefjist sem fyrst. Sveitarstjóra falið að koma umsögninni á framfæri fyrir hönd byggðaráðs.
Byggðaráð skilar einnig inn ítarlegri umsögn um samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030, sem nú liggur fyrir til umsagnar.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Heimastjórn Djúpavogs - 68. fundur - 05.02.2026

Fyrir liggur til umsagnar frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, í umsagnagátt Alþingis, tillaga til þingsályktunar um að hefja framkvæmdir við þjóðveginn yfir Öxi. Frumvarpið er lagt fram af þremur fulltrúum Miðflokksins. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 11. febrúar 2026.
Heimastjórn Djúpavogs tekur undir það sem fram kemur í þingsályktunartillögunni um mikilvægi þess að framkvæmdir við heilsársveg yfir Öxi hefjist sem fyrst.
Getum við bætt efni þessarar síðu?