Fara í efni

Heimastjórn Djúpavogs

68. fundur 05. febrúar 2026 kl. 10:00 - 12:45 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Ívar Karl Hafliðason formaður
  • Ingi Ragnarsson aðalmaður
  • Oddný Anna Björnsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Eiður Ragnarsson fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Eiður Ragnarsson fulltrúi sveitarstjóra

1.Umsagnarbeiðni um Samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030 til

Málsnúmer 202601146Vakta málsnúmer

Heimastjórn vill benda á í tengslum við samgönguáætlun að á síðasta ári óku 106.554 bílar yfir Öxi samkvæmt tölum Vegagerðarinnar sem er 17% aukning frá fyrra ári. Mesta umferðin var í ágúst, 21.108 bílar, að meðaltali 681 bíll á sólarhring.

Miðað við síaukna umferð er ljóst að sú ákvörðun að meirihluti framkvæmda við þennan veg sé á 2. tímabili samgönguáætlunar séu mistök. Vegurinn er fullhannaður, auðvelt er að áfangaskipta verkinu og klára hann á 3-4 árum og því vel hægt að hefjast handa 2026 og ljúka verkinu 2030.

Heimastjórn minnir á að ein af forsendum sameiningar sveitarfélaga í Múlaþing á sínum tíma var sú að endurbætur á Axarvegi færu af stað strax, til að tryggja greiðar heilsárssamgöngur milli byggðarlaga í hinu nýja sveitarfélagi. Í þessu samhengi má benda á að tæplega 30 ungmenni stunda nám við Menntaskólann á Egilsstöðum frá Djúpavogi.

Framkæmdir á Axarvegi falla að mati heimastjórnar mjög vel að megin áherslum Samgönguáætlunar hvað varðar öryggi, styttingu leiða og byggðarþróun.

Einnig vill heimastjórn Djúpavogs benda á að á starfssvæði sínu séu 6 einbreiðar brýr, eða ein brú á 13 km fresti að jafnaði og tímabært sé að fækka þeim hraðar en ráð er fyrir gert í samgönguáætlun.

Einnig lýsir heimastjórn furðu sinni á því að fyrirhugaðar framkvæmdir við Djúpavogshöfn sem er verið að vinna að sé hvergi á áætlun.

Heimastjórn felur starfsmanni að koma athugasemdum á framfæri við viðeigandi aðila.

Samþykkt samhljóða.

2.Umsagnarbeiðni um framkvæmdir við Þjóðveginn yfir Öxi, mál 329 frá nefndar-og greiningarsvið Alþingis

Málsnúmer 202601218Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til umsagnar frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, í umsagnagátt Alþingis, tillaga til þingsályktunar um að hefja framkvæmdir við þjóðveginn yfir Öxi. Frumvarpið er lagt fram af þremur fulltrúum Miðflokksins. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 11. febrúar 2026.
Heimastjórn Djúpavogs tekur undir það sem fram kemur í þingsályktunartillögunni um mikilvægi þess að framkvæmdir við heilsársveg yfir Öxi hefjist sem fyrst.

3.Samfélagsverkefni heimastjórna 2026

Málsnúmer 202601217Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 2. febrúar 2026 þar sem
eftirfarandi var bókað:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að óska eftir hugmyndum heimastjórna
að samfélagsverkefnum í samræmi við fjárhagsáætlun og umræður á fundinum
og felur sviðsstjóra framkvæmda að fylgja málinu eftir til formanna heimastjórna.
Skipting fjármuna verður óbreytt frá fyrri árum þegar heimastjórnir Borgarfjarðar,
Djúpavogs og Seyðisfjarðar fengu 2 milljónir hver til umráða og heimastjórn
Fljótsdalshéraðs 4 milljónir.
Heimastjórn felur starfsmanni að auglýsa eftir tillögum að samfélagsverkefnum.

Samþykkt samhljóða.

4.Prestsþjónusta á Djúpavogi

Málsnúmer 202602009Vakta málsnúmer

Á 67. kirkjuþingi þann 28. október 2025 samþykkti kirkjuþing að heimilt væri að selja prestbústaðinn á Djúpavogi, Steina 1.
Heimastjórn Djúpavogs mótmælir harðlega áformum um sölu á fasteigninni Steinum 1, sem skráð er sem prestsbústaður kirkjunnar á Djúpavogi. Sala eignarinnar myndi fela í sér varanlega skerðingu á þjónustu við íbúa svæðisins og ganga þvert á gildandi skipulag Austfjarðaprestakalls.

Heimastjórn byggir afstöðu sína á eftirfarandi staðreyndum:

1.Skýr búsetuskylda: Á opinberri vefsíðu Austfjarðaprestakalls er kveðið á um að „búsetuskylda er á Fáskrúðsfirði, Djúpavogi og í Heydölum“. Núverandi staða, þar sem enginn prestur hefur aðsetur á Djúpavogi, er því frávik frá eigin reglum kirkjunnar.

2.Nauðsynlegir innviðir: Til að uppfylla ofangreinda búsetuskyldu er nauðsynlegt að kirkjan eigi húsnæði á staðnum. Að selja eina embættisbústaðinn á svæðinu er í reynd yfirlýsing um að leggja eigi embættið niður eða flytja það varanlega í burtu.

3.Íbúafjöldi og þjónusta: Djúpivogur er fjölmennasti byggðakjarninn á suðursvæði prestakallsins. Það er óásættanlegt að þjónusta við rúmlega 400 íbúa sé háð færð og veðri frá Breiðdal.
Heimastjórn krefst þess að fallið verði frá sölu hússins og að Kirkjuráð tryggi að næsta staða prests í prestakallinu verði auglýst með skyldubúsetu á Djúpavogi, í samræmi við stofnskrá og reglur prestakallsins. Viðvera prests er mikið hagsmunamál fyrir öryggi og velferð íbúa á Djúpavogi.

Starfsmanni falið að koma athugasemdum heimastjórnar á framfæri og kalla fulltrúa Austfjarðaprófasts inn á næsta fund.

Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl:

5.Umsóknir í Fiskeldissjóð 2026

Málsnúmer 202602038Vakta málsnúmer

Í upphafi fundar leitaði formaður afbrigða að bæta inn sem lið 5 Umsóknir í Fiskeldissjóð 2026. Tillagan tekin til afgreiðslu og samþykkt samhljóða. Uppfærðist röð dagskrárliða samkvæmt því.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Fiskeldissjóði fyrir árið 2026. Til úthlutunar á árinu 2026 eru 554.000.000 kr.

Skilyrðum fyrir veitingu styrkja úr Fiskeldissjóði hefur verið breytt. Breytingarnar eru gerðar að höfðu samráði við fulltrúa þeirra sjö sveitarfélaga sem eiga rétt á að sækja um styrki í Fiskeldissjóð sem eru Bolungarvík, Fjarðabyggð, Múlaþing, Ísafjarðarbær, Súðavík, Strandabyggð og Vesturbyggð. Hámarksstyrkur til hvers sveitarfélags er 150 milljónir.


Heimastjórn þakkar sveitarstjóra fyrir góða kynningu.

Vegna breytinga á úthlutunarskilyrðum Fiskeldissjóðs, þarf að sækja um í stærri verkefni en verið hefur og þau þurfa að vera á fjárhagsáætlun 2026.
Heimastjórn líst vel á hugmyndir að umsóknum.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir

6.Skýrsla fulltrúa sveitarstjóra á Djúpavogi

Málsnúmer 202209244Vakta málsnúmer

Markarland:
Í vikunni hófst vinna við að reisa nýbyggingu að Markarlandi 10. Gert er ráð fyrir að húsið verði klárað í sumar.
Einnig er í undirbúningi útboð á gatnaframkvæmdum við Markarland, endurnýjun á lögnum og götu ásamt lýsingu og gangstétt.

Höfnin:
Alls var landað um 20.000 tonnum af laxi (óslægt) til slátrunar á Djúpavogi á síðasta ári og um 6.500 tonnum af bolfiski. Vöruflutningar frá Djúpavogshöfn voru um 7.800 tonn og til hafnar um 950 tonn. Skemmtiferðaskip voru 57 með um 31.000 farþegum.
Gert er ráð fyrir endurnýjun á flotbryggju í vor, sett verður niður ný steinsteypt bryggja í stað eldri trébryggju sem er orðin léleg.

Endurbætur í Íþróttamiðstöð Djúpavogs:
Búið er að festa kaup á gufubaðsklefa ásamt útisturtum og gera má ráð fyrir því að vinna við uppsetningu hefjist von bráðar.
Forstöðumaður er að skoða hvaða leiktæki og leikföng verða keypt í sundlaugina í samráði við foreldrafélag grunnskóla og leikskóla.

Vetraþjónusta á Axarvegi.
Ágætt samráð hefur verið það sem af er ári við Vegagerðina um þjónustu á Axarvegi. Hafa lokunardagar eftir áramót verið fáir, enda tíðarfar einstaklega hagstætt.

7.Fundir Heimastjórnar Djúpavogs

Málsnúmer 202010614Vakta málsnúmer

Næsti fundur heimastjórnar Djúpavogs verður haldinn fimmtudaginn 5. mars, í fjarfundi kl. 10:00. Erindi fyrir fundinn þurfa að berast starfsmanni heimastjórnar fyrir kl 16:00 föstudaginn 27. febrúar á netfangið eidur.ragnarsson@mulathing.is.

Fundi slitið - kl. 12:45.

Getum við bætt efni þessarar síðu?