Fara í efni

Bréf til sveitarstjórnar, beiðni um umfjöllun um stofnun innflytjendaráð í Múlaþingi

Málsnúmer 202602002

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 179. fundur - 17.02.2026

Fyrir liggur frá Austurbrú, dagsett 30. janúar 2026, erindi þar sem athygli er vakin á tækifærum til þess að efla skipulagt samráð við íbúa af erlendum uppruna og bjóða upp á samstarf um mögulega stofnun innflytjenda- eða fjölmenningarráðs.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Í ljósi þess hve stutt er til sveitarstjórnarkosninga hvetur byggðaráð Múlaþings næstu sveitarstjórn til að taka málið hið fyrsta upp að loknum kosningum. Þá er því beint til fjölskyldusviðs að efla þá vinnu sem er í gangi varðandi þátttöku innflytjenda í samfélaginu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?