Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

179. fundur 17. febrúar 2026 kl. 08:30 - 11:10 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Vilhjálmur Jónsson varaformaður
  • Hildur Þórisdóttir aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson aðalmaður
  • Þröstur Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Einar Freyr Guðmundsson varamaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Guðlaugur Sæbjörnsson sviðsstjóri fjármála
  • Óðinn Gunnar Óðinsson sviðsstjóri stjórnsýslu
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir sviðsstjóri mannauðs og þjónustu
Fundargerð ritaði: Óðinn Gunnar Óðinsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri, sviðsstjóri fjármála og sviðsstjóri mannauðs- og þjónustu fóru yfir og kynntu mál er varða fjármál og rekstur sveitarfélagsins.

2.Beiðni um styrk vegna fasteignaskatts vegna Strandavegs 13 Seyðisfirði

Málsnúmer 202601219Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn frá Lunga skólanum, dagsett 28. janúar 2026, um styrk vegna fasteignaskatts vegna húsnæðis að Strandarvegi 13, Seyðisfirði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings hafnar umsókn Lunga skólans á þeim forsendum að hún er ekki í samræmi við reglur Múlaþings um styrk vegna fasteigna þar sem rekin er, án þess að vera í ágóðaskyni, menningar-, æskulýðs- og tómstundastarfsemi og mannúðarstörf.
Sveitarstjóra falið að svara erindinu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

3.Þjónustumiðstöð, Djúpavogi

Málsnúmer 202504136Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað, dagsett 28. janúar 2026, frá verkefnastjóra framkvæmda og sviðsstjóra framkvæmda um þjónustumiðstöð á Djúpavogi. Málið var síðast tekið fyrir í byggðaráði 25. nóvember 2025. Á fundinn undir þessum lið mætir Hugrún Hjálmarsdóttir, sviðsstjóri framkvæmda og Rúnar Matthíasson, verkefnastjóri framkvæmda.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að gera tilboð fyrir hönd sveitarfélagsins í hluta húsnæðisins að Mörk 12 og 14 á Djúpavogi.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Sala á áhaldahúsi á Borgarfirði eystra

Málsnúmer 202601069Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað, dagsett 8. janúar 2026, frá sviðsstjóra framkvæmda og slökkviliðsstjóra Múlaþings, þar sem lagt er til að Múlaþing gangi til samninga við Björgunarsveitina Sveinunga á Borgarfirði um kaup Sveinunga á 25% hluta áhaldahússins, F2319737, á Borgarfirði.
Einnig liggur fyrir umsögn heimastjórnar Borgarfjarðar um málið, frá 5. febrúar 2026, en þar kemur fram að heimastjórn taki vel í hugmyndir um söluna til Sveinunga.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að gengið verði til samninga við Björgunarsveitina Sveinunga á Borgarfirði eystra um kaup Sveinunga á 25% hluta áhaldahússins, F2319737, á Borgarfirði (nyrðra húsið).

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Gjaldskrá Fjarðarborgar

Málsnúmer 202601139Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að gjaldskrá fyrir félagsheimilið Fjarðarborg sem vísað er frá heimastjórn Borgarfjarðar til byggðaráðs til staðfestingar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings staðfestir fyrirliggjandi gjaldskrá fyrir félagsheimilið Fjarðarborg.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Framtíðaruppbygging atvinnulífs á Seyðisfirði

Málsnúmer 202310203Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð samráðshóps um uppbyggingu atvinnulífs á Seyðisfirði frá 9. febrúar 2026. Einnig liggja fyrir drög að bréfi til forsætisráðuneytisins með ósk um samstarf við stjórnvöld vegna atvinnuástands á Seyðisfirði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að senda erindi til forsætisráðuneytisins með ósk um samstarf við stjórnvöld um uppbyggingu atvinnulífs á Seyðisfirði.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Fundargerðir fagráðs Sláturhússins menningarmiðstöðvar

Málsnúmer 202602063Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð fagráðs Sláturhússins menningarmiðstöðvar frá 2. febrúar 2026. Í fundargerðinni er því beint til byggðaráðs að hlutast til um að veittir verði fjármunir á fjárhagsáætlun 2027 til kaupa og uppsetningar á drapperingum í sviðslistasalnum og að stuðla að því hafist verði handa við hönnun og frágang lóðar umhverfis Sláturhúsið, eigi síðar en 2027.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings beinir því til deildarstjóra menningarmála að taka upp málefni drapperinga í sviðslistasalnum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2027. Þá er því beint til umhverfissviðs að taka til skoðunar málefni lóðar við Sláturhúsið.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

8.Fundagerðir fagráðs Minjasafns Austurlands

Málsnúmer 202602071Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundagerð fagráðs Minjasafns Austurlands frá 5.janúar 2026. Í fundargerðinni er því beint til byggðaráðs að taka upp á vettvangi samstarfs sveitarfélaga landshlutans möguleika á að koma upp sameiginlegu varðveislurými á Austurlandi sem gæti varðveitt safnkost svæðisins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings beinir því til Sambands sveitarfélaga á Austurlandi að fá Austurbrú til að leiða samtal sveitarfélaganna á Austurlandi um málið.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

9.Bókasafn Múlaþings

Málsnúmer 202602080Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar minnisblað frá deildastjóra menningarmála, dagsett 10. febrúar 2026, þar sem fram koma upplýsingar um opnunartíma Bókasafns Múlaþings á Djúpavogi og Egilsstöðum.
Lagt fram til kynningar.

10.Hafðu áhrif, taktu þátt Átak, til hvatningar framboða

Málsnúmer 202602046Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tölvupóstur, dagsettur 5. febrúar 2026, frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, þar sem vakin er athygli á því að Sambandið, ásamt innviðaráðuneytinu, hafi sett í loftið átak sem miðar að því að styrkja lýðræðið á sveitarstjórnarstigi.
Lagt fram til kynningar.

11.Bréf til sveitarstjórnar, beiðni um umfjöllun um stofnun innflytjendaráð í Múlaþingi

Málsnúmer 202602002Vakta málsnúmer

Fyrir liggur frá Austurbrú, dagsett 30. janúar 2026, erindi þar sem athygli er vakin á tækifærum til þess að efla skipulagt samráð við íbúa af erlendum uppruna og bjóða upp á samstarf um mögulega stofnun innflytjenda- eða fjölmenningarráðs.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Í ljósi þess hve stutt er til sveitarstjórnarkosninga hvetur byggðaráð Múlaþings næstu sveitarstjórn til að taka málið hið fyrsta upp að loknum kosningum. Þá er því beint til fjölskyldusviðs að efla þá vinnu sem er í gangi varðandi þátttöku innflytjenda í samfélaginu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

12.Stefna lögreglunnar á Austurlandi

Málsnúmer 202602082Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar stefna lögreglunnar á Austurlandi fyrir 2026, undir nafninu Öruggara Austurland, samstarf og samvinna.
Lagt fram til kynningar.

13.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202601171Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 992, frá 23. janúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

14.Fundagerðir Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, SSKS 2026

Málsnúmer 202601167Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðun nr. 88, frá 21. janúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

15.Fundargerðir stjórnar HEF 2026

Málsnúmer 202601113Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundagerð stjórnar HEF veitna nr. 361, frá 10.febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

16.Samráðsgátt. Mál nr. S 32026 Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum

Málsnúmer 202601234Vakta málsnúmer

Fyrir liggur í Samráðsgátt frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu mál S 32026, Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 17. febrúar 2026. Málið var síðast á dagskrá byggðaráðs 3. febrúar 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að senda umsögn um málið í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Fundi slitið - kl. 11:10.

Getum við bætt efni þessarar síðu?