Fara í efni

Skrifstofa Múlaþings á Seyðisfirði

Málsnúmer 202602054

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 180. fundur - 24.02.2026

Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs, 16. febrúar 2026, undir máli 202602088, var því vísað til byggðaráðs að taka ákvörðun um hvert flytja eigi skrifstofu sveitarfélagsins á Seyðisfirði vegna fyrirhugaðs flutnings Wathnehússins, þar sem skrifstofan er núna.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að hefja vinnu sem miðar að því að finna skrifstofu sveitarfélagsins á Seyðisfirði aðstöðu á nýjum stað.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Byggðaráð Múlaþings - 183. fundur - 17.03.2026

Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs, 16. febrúar 2026, undir máli 202602088, var því vísað til byggðaráðs að taka ákvörðun um hvert flytja eigi skrifstofu sveitarfélagsins á Seyðisfirði vegna fyrirhugaðs flutnings Wathnehússins, þar sem skrifstofan er núna. Á fundi byggðaráðs 24. febrúar 2026 var sveitarstjóra falið að hefja vinnu sem miðaði að því að finna skrifstofunni aðstöðu á nýjum stað.
Á fundinn undir þessum lið mætti Hugrún Hjálmarsdóttir, sviðsstjóri framkvæmda.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að skrifstofa Múlaþings á Seyðisfirði verði flutt úr Wathne húsi, Hafnargötu 44, á efri hæð Herðubreiðar. Byggðaráð samþykkir einnig að skipaður verði starfshópur starfsfólks skrifstofunnar á Seyðisfirði, bókasafnsins og umhverfissviðs, ásamt sviðsstjórum viðkomandi málaflokka, til að skipuleggja og skilgreina rými skrifstofunnar í Herðubreið, samanber lið 3.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?