Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

180. fundur 24. febrúar 2026 kl. 08:30 - 10:55 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Vilhjálmur Jónsson varaformaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Hildur Þórisdóttir aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson aðalmaður
  • Þröstur Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Guðlaugur Sæbjörnsson sviðsstjóri fjármála
  • Óðinn Gunnar Óðinsson sviðsstjóri stjórnsýslu
Fundargerð ritaði: Óðinn Gunnar Óðinsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála fóru yfir og kynntu mál er varða fjármál og rekstur sveitarfélagsins.

2.Skrifstofa Múlaþings á Seyðisfirði

Málsnúmer 202602054Vakta málsnúmer

Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs, 16. febrúar 2026, undir máli 202602088, var því vísað til byggðaráðs að taka ákvörðun um hvert flytja eigi skrifstofu sveitarfélagsins á Seyðisfirði vegna fyrirhugaðs flutnings Wathnehússins, þar sem skrifstofan er núna.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að hefja vinnu sem miðar að því að finna skrifstofu sveitarfélagsins á Seyðisfirði aðstöðu á nýjum stað.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

3.Prókúra fyrir Múlaþing

Málsnúmer 202602036Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tillaga frá sveitarstjóra um að veita Hlyni Jónssyni, sviðsstjóra stjórnsýslu og Ingvari Rafni Stefánssyni, sviðsstjóra fjármála, prókúruumboð fyrir hönd Múlaþings.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með tilliti til þess að Óðinn Gunnar Óðinsson, sviðsstjóri stjórnsýslu og Guðlaugur Sæbjörnsson, sviðsstjóri fjármála, eru að láta af störfum og nýir einstaklingar að taka við þeirra störfum, leggur byggðaráð Múlaþings til, með vísan til 4. mgr. 55.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 4. mgr. 50.gr. samþykktar um stjórn Múlaþings, að sveitarstjórn heimili sveitarstjóra að veita eftirtöldum starfsmönnum Múlaþings prókúruumboð: Hlyni Jónssyni, sviðsstjóra stjórnsýslu, kt. 3008882089 og Ingvari Rafni Stefánssyni, sviðsstjóra fjármála, kt. 0202872179, frá og með 16. mars 2026.
Umboðið nær til að undirrita skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem krefst samþykkis byggðaráðs og eða sveitarstjórnar.
Byggðaráð vísar málinu til afgreiðslu hjá sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Umsókn um styrk, rekstur og upphaf farsællar smáreksturs

Málsnúmer 202602090Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tölvupóstur dagsettur 11. febrúar 2026, frá András Kerekes, þar sem óskað er eftir styrk vegna kaupa og reksturs á matarvagni.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings getur ekki orðið við fyrirliggjandi styrkbeiðni og felur sviðsstjóra stjórnsýslu að svara erindinu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Afslættir af gatnagerðargjöldum í Múlaþingi 2026-2030

Málsnúmer 202602089Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun frá fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 174. fundi ráðsins frá 16. febrúar síðast liðinn, þar sem því er vísað til byggðarráðs að taka til umfjöllunar tillögu um afslætti á gatnagerðargjöldum af iðnaðar-, athafna-, verslunar- og þjónustulóðum.
Málinu frestað til næsta fundar byggðaráðs.

6.Fundargerð 89. fundar stjórnar Samtaka Orkusveitarfélaga

Málsnúmer 202602127Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 89, frá 9. janúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:55.

Getum við bætt efni þessarar síðu?