Fara í efni

Fundargerðir fagráðs Sláturhússins menningarmiðstöðvar

Málsnúmer 202602063

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 179. fundur - 17.02.2026

Fyrir liggur fundargerð fagráðs Sláturhússins menningarmiðstöðvar frá 2. febrúar 2026. Í fundargerðinni er því beint til byggðaráðs að hlutast til um að veittir verði fjármunir á fjárhagsáætlun 2027 til kaupa og uppsetningar á drapperingum í sviðslistasalnum og að stuðla að því hafist verði handa við hönnun og frágang lóðar umhverfis Sláturhúsið, eigi síðar en 2027.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings beinir því til deildarstjóra menningarmála að taka upp málefni drapperinga í sviðslistasalnum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2027. Þá er því beint til umhverfissviðs að taka til skoðunar málefni lóðar við Sláturhúsið.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?