Fara í efni

Torg- og götusala í Múlaþingi - svæðisgreining

Málsnúmer 202602074

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 174. fundur - 16.02.2026

Á 64. fundi Heimastjórnar Fljótsdalshéraðs, þann 4. desember 2025, var tekið fyrir mál er varðar stöðuleyfi matarvagns á Egilsstöðum og gerði heimastjórn ekki athugasemd við leyfisbeiðnina. Heimastjórn beindi því til byggðaráðs að taka afstöðu til þess hvort vinna ætti samþykkt um útleigu svæða fyrir matarvagna og gjaldtöku.
Á 175. fundi byggðarráðs, þann 6. janúar, var málið tekið fyrir og umhverfis- og framkvæmdaráði falið að taka saman yfirlit yfir möguleg svæði fyrir torg- og götusölu í Múlaþingi.

Fyrir ráðinu liggur minnisblað starfsmanna sem unnið var í tengslum við ofangreint.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir framlagt minnisblað og yfirferð starfsfólks stjórnsýslunnar.
Ráðið tekur undir að ekki sé ástæða til að ráðast í gerð sérstaks regluverks um torg- og götusölu fyrir Múlaþing að svo stöddu, þar sem gildandi reglur um lausafjármuni nái utan um þá eftirspurn sem nú er til staðar. Ráðið vill jafnframt benda á að þau svæði sem skipulagssvið leggur til í minnisblaðinu hafi ákveðnar stærðartakmarkanir; til að mynda rúmar svæðið við gamla Blómabæ á Egilsstöðum að hámarki fjóra söluvagna með hliðsjón af innviðum.

Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur til að við endurskoðun gjaldskrá skipulags- og byggingarmála næsta árs verði gert ráð fyrir gjaldtöku vegna afnota af landi sveitarfélagsins fyrir söluvagna.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?