Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

174. fundur 16. febrúar 2026 kl. 08:30 - 11:36 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Þórhallur Borgarson varaformaður
  • Björgvin Stefán Pétursson aðalmaður
  • Ásdís Hafrún Benediktsdóttir aðalmaður
  • Eiður Gísli Guðmundsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Pétur Heimisson aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Verkefnastjóri umhverfismála, Stefán Aspar Stefánsson, situr fundinn undir lið 1.
Byggingafulltrúi, Jörgen Sveinn Þorðvarðarson, og þjónustufulltrúi byggingamála, Eggert Már Sigtryggsson, sitja fundinn undir lið 2.
Verkefnastjóri skipulagsmála, Sóley Valdimarsdóttir, situr fundinn undir liðum 1-7.
Sveitastjóri, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sat fundinn undir liðum 8 og 9.

1.Starfshópur um gerð loftslagsstefnu fyrir Múlaþing

Málsnúmer 202110188Vakta málsnúmer

Verkefnastjóri umhverfismála leggur fyrir minnisblað um gerð loftslagsstefnu fyrir Múlaþing.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að afturkalla umboð starfshóps um gerð loftslagsstefnu fyrir Múlaþing sbr. erindisbréf dags. 19.12.2022, og felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. Samið skuli við lægstbjóðanda í verkið, Laufið, um gerð stefnunnar.

Samþykkt samhljóða.

2.Yfirferð verkefna á skipulags- og byggingasviði, 2026-2030

Málsnúmer 202602024Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi og verkefnastjóri skipulagsmála í Múlaþingi kynna samantekt verkefna árið 2025.
Lagt fram til kynningar.

3.Afslættir af gatnagerðargjöldum í Múlaþingi 2026-2030

Málsnúmer 202602089Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög að afslætti af gatnagerðargjöldum í Múlaþingi fyrir árið 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að vísa því til byggðaráðs að taka til umfjöllunar afslætti af iðnaðar-, athafna-, verslunar- og þjónustulóðum.

Málið verður tekið fyrir hjá ráðinu að nýju.

Samþykkt samhljóða.

4.Umsókn um byggingarheimild, Suðurgata 2B, 710

Málsnúmer 202601074Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Suðurgötu 2b(L235241) á Seyðisfirði. Áformin eru í samræmi við aðalskipulag en ekkert deiliskipulag er í gildi af svæðinu. Fyrir ráðinu liggur að taka afstöðu til grenndarkynningar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Jafnframt liggur fyrir erindi frá lóðarhafa þar sem óskað er eftir því að fá nýja innkeyrslu að húsinu, samhliða innkeyrslu að Suðurgötu 2a.
Málið er áfram í vinnslu.

5.Umsókn um byggingarheimild, Tjarnarbraut 7, 700

Málsnúmer 202601028Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um byggingaráform við Tjarnarbraut 7 (L158004) á Egilsstöðum sem fela í sér byggingu svala fyrir 2. hæð hússins. Áformin eru í samræmi við aðalskipulag en ekkert deiliskipulag er í gildi af svæðinu. Fyrir ráðinu liggur að taka afstöðu til grenndarkynningar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að áformin verði grenndarkynnt í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning nái til fasteignaeigenda Tjarnarbrautar 5 (L158003).

Samþykkt samhljóða.

6.Markarland 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 202103159Vakta málsnúmer

Fyrir liggur umsókn um frávik frá skipulagsskilmálum vegna staðsetningar bílastæða við Markarland 10 (L231443) á Djúpavogi. Heildarfjöldi bílastæða helst óbreyttur.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir, með vísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að víkja frá kröfum 1. og 2. mgr. sömu greinar um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu vegna fyrirliggjandi umsóknar. Er það gert með vísan til þess að um svo óveruleg frávik sé að ræða í þessu tilviki að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

Samþykkt samhljóða.

7.Torg- og götusala í Múlaþingi - svæðisgreining

Málsnúmer 202602074Vakta málsnúmer

Á 64. fundi Heimastjórnar Fljótsdalshéraðs, þann 4. desember 2025, var tekið fyrir mál er varðar stöðuleyfi matarvagns á Egilsstöðum og gerði heimastjórn ekki athugasemd við leyfisbeiðnina. Heimastjórn beindi því til byggðaráðs að taka afstöðu til þess hvort vinna ætti samþykkt um útleigu svæða fyrir matarvagna og gjaldtöku.
Á 175. fundi byggðarráðs, þann 6. janúar, var málið tekið fyrir og umhverfis- og framkvæmdaráði falið að taka saman yfirlit yfir möguleg svæði fyrir torg- og götusölu í Múlaþingi.

Fyrir ráðinu liggur minnisblað starfsmanna sem unnið var í tengslum við ofangreint.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir framlagt minnisblað og yfirferð starfsfólks stjórnsýslunnar.
Ráðið tekur undir að ekki sé ástæða til að ráðast í gerð sérstaks regluverks um torg- og götusölu fyrir Múlaþing að svo stöddu, þar sem gildandi reglur um lausafjármuni nái utan um þá eftirspurn sem nú er til staðar. Ráðið vill jafnframt benda á að þau svæði sem skipulagssvið leggur til í minnisblaðinu hafi ákveðnar stærðartakmarkanir; til að mynda rúmar svæðið við gamla Blómabæ á Egilsstöðum að hámarki fjóra söluvagna með hliðsjón af innviðum.

Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur til að við endurskoðun gjaldskrá skipulags- og byggingarmála næsta árs verði gert ráð fyrir gjaldtöku vegna afnota af landi sveitarfélagsins fyrir söluvagna.

Samþykkt samhljóða.

8.Umsóknir í Fiskeldissjóð 2026

Málsnúmer 202602038Vakta málsnúmer

Fiskeldissjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2026.
Til úthlutunar á árinu 2026 eru 554.000.000 kr.
Umsóknarfrestur er til og með 17. febrúar 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fela sviðsstjóra framkvæmda að vinna umsóknir vegna 6 verkefna í fiskeldissjóð. Um er að ræða Markarland á Djúpavogi, Slökkvistöð á Djúpavogi, Grunnskólan á Seyðisfirði, Samvinnuhús á Djúpavogi, gatnagerð í Víkurlandi Djúpavogi og Safnahúsið á Egilsstöðum.

Samþykkt samhljóða.

9.Wathnehúsið, Seyðisfirði

Málsnúmer 202602088Vakta málsnúmer

Wathnehúsið, reist árið 1894 við Hafnargötu 44 á Seyðisfirði, er eitt af merkari sögulegum byggingum bæjarins.
Í kjölfar aurskriða sem féllu á Seyðisfirði í desember 2020 og þess hættumats sem í framhaldinu hefur verið unnið, stendur húsið innan skilgreinds hættusvæðis. Til að tryggja varðveislu hússins til framtíðar er því nauðsynlegt að ráðast í flutning þess á öruggari stað. Minjastofnun Íslands hefur veitt styrk til undirbúnings og framkvæmdar verkefnisins, sem miðar að því að vernda menningarlegt gildi hússins og tryggja áframhaldandi vernd þess í samræmi við friðlýsingarskilmála.

Sviðsstjóri framkvæmda kynnir fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði stöðu verkefnisins ásamt því að óska eftir heimild frá ráðinu til áframhaldandi vinnu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar því áfram til byggðarráðs hvert flytja eigi skrifstofu sveitarfélagsins vegna fyrirhugaðs flutnings Wathnehúss. Jafnframt felur ráðið sviðsstjóra framkvæmda að halda áfram þeirru vinnu sem þarf til þess að koma framkvæmdinni áfram.

Samþykkt samhljóða.

10.Skýrsla sviðsstjóra framkvæmda

Málsnúmer 202512240Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri framkvæmda, Hugrún Hjálmarsdóttir, fer yfir stöðu verkefna á sviðinu.
Frestað.

11.Starfshópur um undirbúning nýs Seyðisfjarðarskóla

Málsnúmer 202211079Vakta málsnúmer

Fundargerð 28. fundar starfshóps um undirbúning nýs Seyðisfjarðarskóla lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:36.

Getum við bætt efni þessarar síðu?