Fara í efni

Íþrótta- og tómstundastyrkur fyrri úthlutun 2026

Málsnúmer 202602084

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 156. fundur - 07.04.2026

Fyrir liggja umsóknir um íþrótta- og tómstundastyrki Múlaþings sem auglýstir voru til umsóknar með umsóknarfrest til og með 15. mars 2026. Alls barst 21 umsókn að upphæð 10.122.000 kr.
Í upphafi máls vöktu Ásrún Mjöll Stefánsdóttir (ÁMS) og Jóhann Hjalti Þorsteinsson (JHÞ) athygli á mögulegu vanhæfi sínu undir málsliðnum. ÁMS og JHÞ gerðu grein fyrir vanhæfi sínu og bar formaður upp tillögur til atkvæðagreiðslu. Vanhæfi Ásrúnar var samþykkt samhljóða og hún vék af fundi undir þessum lið. Í kosningu um vanhæfi Jóhanns Hjalta greiddi einn atkvæði með (EFG), tveir á móti (SG,ES) og fjórir sátu hjá (ÁMS,ÞBJ,BE,JHÞ).

Fjölskylduráð leggur til að eftirfarandi verkefni verði styrkt:
1. Skorkerfi fyrir pílu á Borgarfirði eystri, umsækjandi Guðmundur Bj. Hafþórsson fyrir hönd Píluklúbbs Múlaþings, 150.000 kr.
2. Frisbígolfvöllurinn í Selskógi, umsækjandi Glúmur Björnsson, 380.000 kr.
3. Búnaður fyrir Pílufélag Seyðisfjarðar, umsækjandi Pílufélag Seyðisfjarðar, 150.000 kr.
4. Íshokkí- og skautabúnaður fyrir börn í Múlaþingi, umsækjandi Zdenek Siroky, 400.000 kr.
5. Íþróttaæfingar fyrir börn á Borgarfirði eystri, umsækjandi Óttar Már Kárason fyrir hönd UMFB, 120.000 kr.
6. Uppbygging flata á golfvelli Golfklúbbs Djúpavogs, umsækjandi Golfklúbbur Djúpavogs, 300.000 kr.


Fjölskylduráð þakkar fyrir allar umsóknirnar og óskar umsækjendum velfarnaðar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?