Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

156. fundur 07. apríl 2026 kl. 12:30 - 14:25 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Sigurður Gunnarsson formaður
  • Björg Eyþórsdóttir varaformaður
  • Einar Freyr Guðmundsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Eyþór Stefánsson aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Þórlaug Alda Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Þórey Birna Jónsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
  • Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar
  • Stefanía Malen Stefánsdóttir grunnskólafulltrúi
  • Marta Wium Hermannsdóttir leikskólafulltrúi
  • Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri velferðar á fjölskyldusviði
Áheyrnarfulltrúar grunnskóla Dagbjört Kristinsdóttir, Karen Sveinsdóttir og Agla Þorsteinsdóttir sátu liði 1-3. Áheyrnarfulltrúi leikskóla Kolbrún Nanna Magnúsdóttir sat lið 1. Skólastjórarnir Anna Birna Einarsdóttir og Þorbjörg Sandholt fylgdu eftir liðum sinna skóla.

1.Forvarnastefna Múlaþings

Málsnúmer 202603250Vakta málsnúmer

Fyrir liggur ný forvarnastefna Múlaþings sem gildir til ársins 2035
Fjölskylduráð lýsir mikilli ánægju með stefnuna og vísar henni til sveitarstjórnar til samþykktar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Fundargerð skólaráðs Djúpavogsskóla

Málsnúmer 202010632Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð skólaráðs Djúpavogsskóla, dagsett 26. mars sl.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

3.Fundargerðir skólaráðs Fellaskóla

Málsnúmer 202010628Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundargerð skólaráðs Fellaskóla, dagsett 19. mars 2026.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

4.Íþrótta- og tómstundastyrkur fyrri úthlutun 2026

Málsnúmer 202602084Vakta málsnúmer

Fyrir liggja umsóknir um íþrótta- og tómstundastyrki Múlaþings sem auglýstir voru til umsóknar með umsóknarfrest til og með 15. mars 2026. Alls barst 21 umsókn að upphæð 10.122.000 kr.
Í upphafi máls vöktu Ásrún Mjöll Stefánsdóttir (ÁMS) og Jóhann Hjalti Þorsteinsson (JHÞ) athygli á mögulegu vanhæfi sínu undir málsliðnum. ÁMS og JHÞ gerðu grein fyrir vanhæfi sínu og bar formaður upp tillögur til atkvæðagreiðslu. Vanhæfi Ásrúnar var samþykkt samhljóða og hún vék af fundi undir þessum lið. Í kosningu um vanhæfi Jóhanns Hjalta greiddi einn atkvæði með (EFG), tveir á móti (SG,ES) og fjórir sátu hjá (ÁMS,ÞBJ,BE,JHÞ).

Fjölskylduráð leggur til að eftirfarandi verkefni verði styrkt:
1. Skorkerfi fyrir pílu á Borgarfirði eystri, umsækjandi Guðmundur Bj. Hafþórsson fyrir hönd Píluklúbbs Múlaþings, 150.000 kr.
2. Frisbígolfvöllurinn í Selskógi, umsækjandi Glúmur Björnsson, 380.000 kr.
3. Búnaður fyrir Pílufélag Seyðisfjarðar, umsækjandi Pílufélag Seyðisfjarðar, 150.000 kr.
4. Íshokkí- og skautabúnaður fyrir börn í Múlaþingi, umsækjandi Zdenek Siroky, 400.000 kr.
5. Íþróttaæfingar fyrir börn á Borgarfirði eystri, umsækjandi Óttar Már Kárason fyrir hönd UMFB, 120.000 kr.
6. Uppbygging flata á golfvelli Golfklúbbs Djúpavogs, umsækjandi Golfklúbbur Djúpavogs, 300.000 kr.


Fjölskylduráð þakkar fyrir allar umsóknirnar og óskar umsækjendum velfarnaðar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Frumkvæðisathugun GEV á stöðu fósturbarna á Íslandi

Málsnúmer 202603193Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tilkynning um frumkvæðisathugun á eftirlitsskyldum barnaverndarþjónustu vegna barna í fóstri, dagsett 3. mars 2026.
Tilkynning lögð fram til kynningar.

6.Skýrsla sviðsstjóra fjölskyldusviðs 2026

Málsnúmer 202512222Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrsla sviðsstjóra fjölskyldusviðs.
Skýrsla lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:25.

Getum við bætt efni þessarar síðu?