Fara í efni

Beiðni um styrk til reksturs og uppbyggingar gömlu kirkjunnar á Djúpavogi

Málsnúmer 202603043

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 183. fundur - 17.03.2026

Fyrir liggur erindi, dagsett 2. mars 2026, frá Hollvinasamtökum Gömlu kirkjunnar á Djúpavogi, þar sem óskað er eftir styrk til reksturs og uppbyggingar kirkjunnar.
Í vinnslu.

Byggðaráð Múlaþings - 201. fundur - 06.10.2026

Fyrir liggur erindi frá Hollvinasamtökum Gömlu kirkjunnar á Djúpavogi, þar sem óskað er eftir styrk til reksturs og uppbyggingar kirkjunnar. Málið var tekið fyrir á fundi byggðaráðs 17. mars 2026.
Við upphaf máls vakti ÞKS athygli á vanhæfi sínu og bar formaður upp tillögu þess efnis sem var samþykkt samhljóða. ÞKS vék af fundinum undir umfjöllun og afgreiðslu málsins.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að veita Hollvinasamtökum Gömlu kirkjunnar á Djúpavogi styrk til reksturs og uppbyggingar kirkjunnar að fjárhæð kr. 500.000,- af lið 05835. Styrkurinn verði veittur árlega til fimm ára.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?