Fyrir liggur til kynningar erindi frá Hrafnkötlu Eiríksdóttur, verkefnastjóra Eyglóarverkefnisins hjá Austurbrú varðandi lágt niðurgreiðsluhlutfall raforku í íbúðarhúsnæði á Borgarfirði eystri. Hvetur hún heimastjórn til að kanna hvort íbúar njóti niðurgreiðslna sem þeir eiga rétt á. Um geti verið að ræða talsverðar upphæðir, eða rúmlega 360.000 kr. á ári á heimili miðað við meðalraforkunotkun á Borgarfirði eystri, enda er bæjarfélagið á dreifbýlistaxta.
Samkvæmt upplýsingum frá HMS voru skráð 70 fullbúin íbúðarhúsnæði í þéttbýli á Borgarfirði árið 2024. Hins vegar voru aðeins 44 rafmagnsmælar sem skráðu raforkunotkun sem féll undir niðurgreiðslur. Það þýðir að aðeins 63% íbúðarhúsnæðis á Borgarfirði er með niðurgreiðslu. Í dreifbýlinu er staðan þannig að samkvæmt HMS eru 33 íbúðir/húsnæði með skráningu en aðeins 7 mælar sem skrá niðurgreidda raforkunotkun. Niðurgreiðsluhlutfallið í dreifbýlinu er því aðeins 21%.
Hlutfallið telst óvenju lágt og tilefni er fyrir húsnæðiseigendur á Borgarfirði að skoða sín mál nánar. Það er hægt að gera inni á "mínum síðum" á vef Orkustofnunar, www.orkustofnun.is. Þá er velkomið að leita ráða hjá Hrafnkötlu með því að senda tölvupóst á hrafnkatla@austurbru.is.