Málsnúmer 202212043Vakta málsnúmer
Leiguíbúðir sveitarfélagsins á Borgarfirði: Framkvæmdir hefjast í næstu viku í Ásbrún 1 og í framhaldinu í Dagsbrún 2. Ólag hefur verið á varmadælum í Lækjarbrún og Lækjargrund en verið er að finna út úr því.
Endurbygging gömlu löndunarbryggjunnar í Borgarfjarðarhöfn: Verktakar hafa undanfarið unnið að undirbúningi verksins á Seyðisfirði en veðrið undanfarið hefur sett strik í reikninginn. Hefst vinna í höfninni um leið og veður leyfir.
Hafnarhólmi: Til stendur að mála bílastæðið ofan við höfnina, sem malbikað var í haust, á næstu vikum. Gjaldtaka hefst 1. maí. Starfsfólk þjónustumiðstöðvar mun á næstunni sinna reglubundnu viðhaldi á stigum og pöllum í hólmanum.
Lindarbakki: Myndarlegur styrkur fékkst úr húsafriðunarsjóði Minjastofnunar Íslands, 1.000.000 kr., til viðgerða á torfhleðslum bæjarhúsa en hleðslur við bílskúrinn eru mjög illa farnar.
Árleg lundamótttaka íbúa mun fara fram með hefðbundnu sniði á Sumardaginn fyrsta.