Fara í efni

Beiðni um endurskoðun reglna um styrk vegna fasteigna þar sem rekin er, án þess að vera í ágóðaskyni, menningar-, æskulýðs- og tómstundastarfsemi og mannúðarstarfsemi

Málsnúmer 202603091

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 183. fundur - 17.03.2026

Fyrir liggur erindi, dagsett 12. mars 2026, frá Ásrúnu Mjöll Stefánsdóttur, formanni stjórnar Lungaskólans, þar sem óskað er eftir að reglur sveitarfélagsins um styrk vegna fasteigna þar sem rekin er óhagnaðardrifin menningar-, æskulýðs- og tómstundastarfsemi og mannúðarstarf, verði endurskoðaðar með það að markmiði að tryggja jafnræði óhagnaðardrifinna aðila, óháð rekstrarformi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að fela sviðsstjóra stjórnsýslu að yfirfara umræddar reglur og leggja málið fyrir byggðaráð að því loknu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?