Fara í efni

Fjarskipti og varafl á Borgarfirði, rýni eftir óveður 2. mars 2026

Málsnúmer 202604005

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Borgarfjarðar - 68. fundur - 09.04.2026

Í óveðrinu mánudaginn 2. mars síðastliðinn brotnuðu staurastæður og rafmagn fór af á Borgarfirði og í Njarðvík. Við það sköpuðust ótryggar aðstæður á svæðinu en á sama tíma var allt ófært; innanbæjar, yfir Vatnsskarð og um Njarvíkurskriður. Símasambandslaust varð í Njarðvík þar sem ekki er varaafl á sendi og varaafl í rafstöð á Borgarfirði kom ekki inn vegna bilunar í búnaði.
Heimastjórn óskar eftir að almannavarnanefnd Austurlands rýni þær aðstæður sem sköpuðust og yfirfari verkferla og að Rarik tryggi að á Borgarfirði sé ávallt til staðar þekking og mannskapur til að bregðast við aðstæðum sem þessum.

Starfsmanni falið að koma ábendingunum áfram.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?