Fara í efni

Yfirlýsing um afsal á forkaupsrétti á Fálkatindi NS-099

Málsnúmer 202604024

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 186. fundur - 21.04.2026

Fyrir liggur erindi frá Kára Borgar Ásgrímssyni, dagsett 7. apríl 2026, þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins til þess hvort það afsali sér forkaupsrétti á bátnum Fálkatindi NS-099. Sveitarstjóri svaraði erindinu og staðfesti að sveitarfélagið ætlaði ekki að nýta forkaupsréttinn.
Helgi Hlynur Ásgrímsson og Eyþór Stefánsson gerðu grein fyrir mögulegu vanhæfi sínu til afgreiðslu á málinu og véku þeir af fundi undir þessum lið.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings staðfestir að sveitarfélagið afsali sér forkaupsrétti á bátnum Fálkatindi NS-099.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?