Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

186. fundur 21. apríl 2026 kl. 08:30 - 11:37 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Vilhjálmur Jónsson varaformaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson aðalmaður
  • Þröstur Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Eyþór Stefánsson varamaður
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála fóru yfir og kynntu mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

2.Stofnsamningur Héraðsskjalasafns Austfirðinga

Málsnúmer 202209123Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá forstöðumanni Héraðsskjalasafns Austfirðinga, dagsett 14. apríl 2026, varðandi stofnsamning safnsins, meðal annars í tengslum við viðbyggingu Safnahússins á Egilsstöðum. Inn á fundinn undir þessum lið mættu Stefán Bogi Sveinsson, forstöðumaður Héraðsskjalasafns Austfirðinga, og Jón Björn Hákonarson, formaður stjórnar.
Lagt fram til kynningar.

Byggðaráð Múlaþings þakkar Stefáni Boga og Jóni Birni fyrir komuna á fundinn.

3.Miðbær á Egilsstöðum, uppbygging

Málsnúmer 202308120Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri og Sóley Valdimarsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála, fóru yfir stöðu mála varðandi uppbyggingu miðbæjar á Egilsstöðum.
Lagt fram til kynningar.

Íbúar eru hvattir til þess að mæta á opinn íbúafund vegna miðbæjarskipulags, mánudaginn 27. apríl kl. 16:30 í Sláturhúsinu á Egilsstöðum.

4.Framboðsfundir vegna sveitarstjórnarkosninga í Múlaþingi

Málsnúmer 202604083Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað frá sviðsstjóra stjórnsýslu um hugsanlegt fyrirkomulag framboðsfunda í sveitarfélaginu vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram fara 16. maí 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Byggðaráð Múlaþings felur sviðsstjóra stjórnsýslu að hafa samband við oddvita allra framboða fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 2026 varðandi fyrirkomulag framboðsfunda í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Steinar 1, framkvæmdir, gamla kirkjan á Djúpavogi

Málsnúmer 202106143Vakta málsnúmer

Fyrir liggur endanlegur samningur um afhendingu sveitarfélagsins á Gömlu kirkjunni á Djúpavogi til hollvinasamtaka Gömlu kirkjunnar og beiðni um fjárstuðning við samtökin næstu þrjú árin til að styðja við uppbygginguna. Formleg afhending mun fara fram á Hammondhátíð sunnudaginn 26. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að undirrita samning um afhendingu Gömlu kirkjunnar á Djúpavogi til hollvinasamtaka hennar þann 26. apríl 2026. Þá samþykkir byggðaráð einnig að veita hollvinasamtökunum styrk að upphæð 500 þúsund kr. á ári næstu þrjú árin til að standa straum að fastakostnaði og halda áfram endurgerð kirkjunnar. Eftir það er stefnt að því að rekstur húsnæðisins verði sjálfbær.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Yfirlýsing um afsal á forkaupsrétti á Fálkatindi NS-099

Málsnúmer 202604024Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Kára Borgar Ásgrímssyni, dagsett 7. apríl 2026, þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins til þess hvort það afsali sér forkaupsrétti á bátnum Fálkatindi NS-099. Sveitarstjóri svaraði erindinu og staðfesti að sveitarfélagið ætlaði ekki að nýta forkaupsréttinn.
Helgi Hlynur Ásgrímsson og Eyþór Stefánsson gerðu grein fyrir mögulegu vanhæfi sínu til afgreiðslu á málinu og véku þeir af fundi undir þessum lið.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings staðfestir að sveitarfélagið afsali sér forkaupsrétti á bátnum Fálkatindi NS-099.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Mótmæli starfsfólks vegna breytinga á úthlutunarreglum til heilsueflingar

Málsnúmer 202604068Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá starfsmönnum Egilsstaðaskóla, móttekið 14. apríl 2026, þar sem mótmælt er breytingum sem gerðar voru á úthlutunarreglum heilsueflingarstyrks starfsfólks.
Í vinnslu.

8.Bréf frá umboðsmanni barna, sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna

Málsnúmer 202604066Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bréf frá umboðsmanni barna, dagsett 13. apríl 2026, til sveitarfélagsins Múlaþings um sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðislega þátttöku barna.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar umboðsmanni barna fyrir erindið.
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

9.Ársfundur Brákar íbúðarfélags hses 28.apríl 2026

Málsnúmer 202604065Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundarboð frá 13. apríl 2026 á ársfund Brákar íbúðafélags, sem fram fer þriðjudaginn 28. apríl 2026 kl. 12.00.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri sæki fundinn fyrir hönd Múlaþings og fari með atkvæði sveitarfélagsins. Varamaður verði Ingvar Rafn Stefánsson, sviðsstjóri fjármála.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

10.Fundarboð, aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga

Málsnúmer 202604047Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundarboð, dagsett 14. apríl 2026, vegna aukaaðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn verður í fjarfundi miðvikudaginn 29. apríl 2026 kl. 16.00.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings samþykkir að Jónína Brynjólfsdóttir sæki fundinn fyrir hönd Múlaþings og fari með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum. Varamaður verði Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

11.Fundarboð á ársfund Stapa lífeyrissjóðs 2026

Málsnúmer 202604003Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til kynningar fundarboð, dagsett 27. mars 2026, á ársfund Stapa lífeyrissjóðs sem haldinn verður 27. apríl 2026 í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri.
Lagt fram til kynningar.

12.Frumvarp innviðaráðherra um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða nr. 1162006 (sértækar ívilnanir og jöfnunarheimild)

Málsnúmer 202603228Vakta málsnúmer

Fyrir liggur frumvarp innviðaráðherra til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (sértækar ívilnanir og jöfnunarheimild). Einnig liggja fyrir bókanir heimastjórna Borgarfjarðar og Djúpavogs um frumvarpið frá 9. apríl 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að senda inn umsögn um frumvarpið í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Fundi slitið - kl. 11:37.

Getum við bætt efni þessarar síðu?