Fara í efni

Golfklúbbur Djúpavogs, beiðni um styrk og samstarfssamning

Málsnúmer 202604048

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 157. fundur - 21.04.2026

Fyrir liggur erindi frá Golfklúbbi Djúpavogs, dagsett 12. apríl sl., þar sem óskað er eftir samstarfi við sveitarfélagið, annars vegar í formi stofnstyrks vegna uppbyggingar klúbbsins og hins vegar með samningi um árlega styrkveitingu til rekstrar og áframhaldandi þróunar starfseminnar.
Fjölskylduráð þakkar fyrir erindi Golfklúbbs Djúpavogs. Ráðið tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?