Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

157. fundur 21. apríl 2026 kl. 13:00 - 14:20 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Sigurður Gunnarsson formaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson aðalmaður
  • Einar Freyr Guðmundsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Eyþór Stefánsson aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Þórlaug Alda Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Þórey Birna Jónsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
  • Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar
  • Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri velferðar á fjölskyldusviði

1.Sumarfrístund 2026

Málsnúmer 202604073Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað um fyrirkomulag sumarfrístundar í Múlaþingi 2026
Fjölskylduráð samþykkir að sama fyrirkomulag verði á sumarfrístund og í fyrra, opið frá 8. júní til og með 21. ágúst.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Samstarf milli skíðasvæðanna Stafdals og Oddskarðs

Málsnúmer 202401019Vakta málsnúmer

Á fundi byggðaráðs þann 3. febrúar 2026 lá fyrir stofnkostnaðargreining vegna fyrirhugaðs skíðasvæðis í Selskógi á Egilsstöðum. Byggðaráð óskaði í kjölfarið eftir umsögn frá Skíðafélaginu í Stafdal um málið og vísaði því til áframhaldandi umfjöllunar hjá fjölskylduráði.
Skíðafélagið í Stafdal hefur lagt fram umsögn og þakkar fjölskylduráð félaginu fyrir. Fjölskylduráð sér sér ekki fært um að fara lengra með málið að svo stöddu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Velferð og heilsuefling nýrra foreldra

Málsnúmer 202511179Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Ásrúnu Mjöll Stefánsdóttur, dagsett 19. nóvember 2025, er varðar velferð og heilsueflingu nýrra foreldra, með sérstakri áherslu á nýbakaðar mæður. Erindið hefur áður verið tekið fyrir á 147. og 150. fundi fjölskylduráðs.
Fjölskylduráð þakkar fyrir framlagt erindi en sér sér ekki fært að verða við því að svo stöddu. Ráðið áréttar að hlutverk sveitarfélagsins felst einkum í því að skapa aðstæður til hreyfingar og útivistar auk þess að veita þjónustu á fjölskyldusviði til þeirra sem eftir henni leita, í samræmi við gildandi lög og reglur.

Samþykkt með fimm atkvæðum, einn situr hjá (JHÞ) og einn á móti (ÁMS).

Fulltrúi V-lista leggur fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúi VG telur að þó hlutverk sveitarfélagsins sé skilgreint í lögum felist raunverulegur styrkur þess einnig í því að ganga lengra og bjóða upp á þjónustu sem bætir lífsgæði íbúa og gerir sveitarfélagið að eftirsóknarverðum búsetukosti. Sveitarfélagið sinnir nú þegar fjölmörgum verkefnum sem ekki eru lögbundin, svo sem á sviði heilsueflingar, frístunda og samfélagsverkefna, enda er ljóst að slík þjónusta hefur jákvæð áhrif á vellíðan íbúa og aðdráttarafl svæðisins. Undirrituð telur eðlilegt að sá sami vilji nái einnig til nýbakaðra mæðra.

Ef markmið okkar er að laða að og halda í ungar fjölskyldur þarf Múlaþing að vera leiðandi í stuðningi við foreldra. Heilsuefling á fyrstu stigum foreldrahlutverksins er fjárfesting í velferð fjölskyldna og framtíð sveitarfélagsins.

Undirrituð mun áfram beita sér fyrir því að slík úrræði verði þróuð.
ÁMS.

4.Golfklúbbur Djúpavogs, beiðni um styrk og samstarfssamning

Málsnúmer 202604048Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Golfklúbbi Djúpavogs, dagsett 12. apríl sl., þar sem óskað er eftir samstarfi við sveitarfélagið, annars vegar í formi stofnstyrks vegna uppbyggingar klúbbsins og hins vegar með samningi um árlega styrkveitingu til rekstrar og áframhaldandi þróunar starfseminnar.
Fjölskylduráð þakkar fyrir erindi Golfklúbbs Djúpavogs. Ráðið tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Skýrsla sviðsstjóra fjölskyldusviðs 2026

Málsnúmer 202512222Vakta málsnúmer

Fyrir liggur skýrsla sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu.
Skýrsla lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:20.

Getum við bætt efni þessarar síðu?