Fara í efni

Flug og fákar 2026, umsögn byggðaráðs

Málsnúmer 202604090

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 187. fundur - 28.04.2026

Fyrir liggur erindi frá Þuru Garðarsdóttur, dagsett 8. apríl 2026, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna flughátíðarinnar Flugs og fáka sem haldin verður á Egilsstaðaflugvelli 26. júlí 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings gerir ekki athugasemd við að flughátíðin Flug og fákar fari fram á Egilsstaðaflugvelli 26. júlí 2026 í samræmi við fyrirliggjandi drög að dagskrá.
Deildarstjóra menningarmála falið að koma afgreiðslu byggðaráðs á framfæri við aðstandendur hátíðarinnar.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?