Fara í efni

Byggðaráð Múlaþings

187. fundur 28. apríl 2026 kl. 08:30 - 11:31 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir formaður
  • Vilhjálmur Jónsson varaformaður
  • Ívar Karl Hafliðason aðalmaður
  • Hildur Þórisdóttir aðalmaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson aðalmaður
  • Þröstur Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Ingvar Rafn Stefánsson sviðsstjóri fjármála
  • Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir sviðsstjóri mannauðs og þjónustu
Fundargerð ritaði: Hlynur Jónsson sviðsstjóri stjórnsýslu

1.Fjármál 2026

Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer

Sveitarstjóri, sviðsstjóri fjármála og sviðsstjóri mannauðs og þjónustu fóru yfir og kynntu mál er varða rekstur og fjármál sveitarfélagsins.

2.Staða framkvæmda í Múlaþingi 2026

Málsnúmer 202604193Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri framkvæmda fór yfir og kynnti stöðu framkvæmda á vegum sveitarfélagsins á árinu 2026.
Byggðaráð Múlaþings þakkar Hugrúnu Hjálmarsdóttur, sviðsstjóra framkvæmda, fyrir góða yfirferð yfir framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins.

Lagt fram til kynningar.

3.Málefni Ríkarðshúss á Djúpavogi.

Málsnúmer 202105265Vakta málsnúmer

Fyrir liggur bókun frá fundi heimastjórnar Djúpavogs 9. apríl 2026 um málefni Ríkarðshúss þar sem málinu var vísað til byggðaráðs Múlaþings og lagt til að ráðist yrði í stefnumótunarvinnu varðandi uppbyggingu og rekstur á Ríkarðssafni þar sem horft yrði til samlegðaráhrifa í menningartengdri starfsemi á Djúpavogi. Inn á fundinn undir þessum lið mættu Elsa Guðný Björgvinsdóttir, deildarstjóri menningarmála, og Kristján Ingimarsson, formaður stjórnar Ríkarðshúss.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar Elsu Guðnýju og Kristjáni fyrir komuna á fundinn og tekur undir mikilvægi þess að farið verði í stefnumótunarvinnu varðandi rekstur og uppbyggingu á Ríkarðssafni, þar sem horft yrði til samlegðaráhrifa í menningartengdri starfsemi á Djúpavogi.

Deildarstjóra menningarmála er falið að undirbúa erindisbréf fyrir starfshóp um málefni Ríkarðssafns sem tekið verður upp í byggðaráði eftir sveitarstjórnarkosningar.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

4.Mótmæli starfsfólks vegna breytinga á úthlutunarreglum til heilsueflingar

Málsnúmer 202604068Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá starfsmönnum Egilsstaðaskóla, móttekið 14. apríl 2026, þar sem mótmælt er breytingum sem gerðar voru á úthlutunarreglum heilsueflingarstyrks starfsfólks. Málið var tekið fyrir á 186. fundi byggðaráðs 21. apríl 2026. Inn á fundinn undir þessum lið mætti Sigrún Hólm, sviðsstjóri mannauðs og þjónustu, og fór yfir tildrög breytinganna með hliðsjón af lögum og framkvæmd annarra sveitarfélaga.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar starfsfólki Egilsstaðaskóla fyrir erindið.

Þá þakkar byggðaráð sviðsstjóra mannauðs og þjónustu fyrir sína yfirferð og felur henni að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.

Byggðaráð leggur ríka áherslu á mikilvægi heilsueflingar og vellíðunar starfsfólks sveitarfélagsins, enda var aukið við fjárhæð heilsueflingarstyrksins með fyrirliggjandi breytingu, og vill byggðaráð með þeim hætti styðja við heilbrigðan lífsstíl starfsfólks.

Það er einlægur vilji byggðaráðs að halda áfram að styðja vel við starfsfólk sitt innan þess ramma sem lög og reglur setja og er sviðsstjóra mannauðs og þjónustu falið að vinna að heildarendurskoðun styrkjanna svo þeir nái þeim markmiðum sem þeim er ætlað að ná.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. 2026

Málsnúmer 202604084Vakta málsnúmer

Fyrir liggur fundarboð, dagsett 17. apríl 2026, á aðalfund Landskerfis bókasafna hf. sem haldinn verður 12. maí 2026 kl. 14.00 að Katrínartúni 4 í Reykjavík.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur forstöðumanni Bókasafns Múlaþings að sitja fundinn í fjarfundi fyrir hönd sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

6.Flug og fákar 2026, umsögn byggðaráðs

Málsnúmer 202604090Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Þuru Garðarsdóttur, dagsett 8. apríl 2026, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna flughátíðarinnar Flugs og fáka sem haldin verður á Egilsstaðaflugvelli 26. júlí 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings gerir ekki athugasemd við að flughátíðin Flug og fákar fari fram á Egilsstaðaflugvelli 26. júlí 2026 í samræmi við fyrirliggjandi drög að dagskrá.
Deildarstjóra menningarmála falið að koma afgreiðslu byggðaráðs á framfæri við aðstandendur hátíðarinnar.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Tillaga til þingsályktunar um fjármálaáætlun 2027-2031, 577. mál

Málsnúmer 202604192Vakta málsnúmer

Fyrir liggur á Alþingi tillaga til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031 (577. mál), en frestur til þess að veita umsögn um tillöguna er til 4. maí 2026.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings felur sveitarstjóra að senda inn umsögn um þingsályktunartillöguna í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Fundi slitið - kl. 11:31.

Getum við bætt efni þessarar síðu?