Fara í efni

Aðgengi að Hringsjá yst á klettaásnum Hömrum í Þéttbýli Egilsstaða

Málsnúmer 202604197

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 181. fundur - 27.04.2026

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur erindi frá Helga Hallgrímssyni, Egilsstöðum, er varðar endurbætur á torfærum hluta stígarins frá götunni Fénaðarklöpp upp á Hamra þar sem hringjsáin er.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir erindið og felur sviðsstjóra framkvæmda að setja lagfæringar að aðgengi að Hringsjánni á verkefnalista, meta kostnað við það og útfæra. Skoða þarf merkingar og aðgengi.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?