Málsnúmer 202602089Vakta málsnúmer
Á 183. fundi byggðarráðs þann 17. mars sl., bókaði ráðið um hvatningu til umhverfis- og framkvæmdaráðs að ýta undir uppbyggingu atvinnulífs í Fellabæ og að veita afslætti á iðnaðar- og athafnalóðum þar. Umhverfis- og framkvæmdaráð tók málið til afgreiðslu á 178. fundi sínum 23. mars. Þar bókaði umhverfis- og framkvæmdaráð að veita 50% afslátt af gatnagerðargjöldum á athafnalóðum við Selblá og Valgerðarveg í Fellabæ og gildir afslátturinn út árið 2027. Sveitastjórn staðfesti svo á 67. fundi sínum 15. apríl að auglýsa afslættina á heimasíðu sveitarfélagsins.
Starfsfólk skipulagssviðs vann í kjölfarið minnisblað um fjölgun athafna- og iðnarðalóða og liggur það nú fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði, til yfirferðar og umræðu.