Fara í efni

Breyting á lóðarmörkum, Búland 10 og 12, Djúpivogur

Málsnúmer 202605123

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 184. fundur - 08.06.2026

Í upphafi máls vakti formaður Þórhildur Katrín Stefánsdóttir (ÞKS), athygli á vanhæfi sínu undir málslið 8. og gerði grein fyrir því. ÞKS fól varaformanni, Þóreyju Birnu Jónsdóttur (ÞBJ), fundarstjórn og bar ÞBJ málið upp til atkvæðagreiðslu og var það samþykkt samhljóða.
ÞKS vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur erindi er varðar breytingu á núverandi lóðarmörkum milli Búlands 10 (L159321) og Búlands 12 (L159262) á Djúpavogi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að heimila breytingu á lóðarmörkum, þ.e. stækkun lóðar að Búlandi 12 og að stækka lóð vegna Búlands 10 í samræmi við umræður á fundinum og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?