Fara í efni

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings

184. fundur 08. júní 2026 kl. 08:30 - 12:12 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Þórhildur Katrín Stefánsdóttir formaður
  • Þórey Birna Jónsdóttir varaformaður
  • Guðmundur Björnsson Hafþórsson aðalmaður
  • Þórhallur Borgarsson aðalmaður
  • Þórir Stefánsson aðalmaður
  • Glúmur Björnsson aðalmaður
  • Ásrún Mjöll Stefánsdóttir aðalmaður
  • Hannes Karl Hilmarsson áheyrnarfulltrúi
  • Hólmfríður Rut Einarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Hugrún Hjálmarsdóttir sviðsstjóri framkvæmda
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri
  • Anna Margrét Jakobsd. Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Fundargerð ritaði: Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar þjónustufulltrúi skipulagsmála
Haraldur Geir Eðvaldsson, slökkviliðsstjóri, sat fundinn undir lið 5.

Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitastjóri og hafnastjóri, sat fundinn undir liðum 1.-2. og 4.-7.

Sóley Valdimarsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála, sat fundinn undir liðum 9. og 10.

1.Siðareglur kjörinna fulltrúa

Málsnúmer 202605238Vakta málsnúmer

Fyrir ráðinu liggja siðareglur kjörinna fulltrúa.
Lagt fram til kynningar.

2.Erindisbréf nefnda

Málsnúmer 202206247Vakta málsnúmer

Lagt er fram, til yfirferðar og kynningar, erindisbréf fyrir umhverfis- og framkvæmdaráð.
Lagt fram til kynningar.

3.Fundir umhverfis- og framkvæmdaráðs 2026-2030

Málsnúmer 202606013Vakta málsnúmer

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur tillaga að fundarskipulagi fyrir næsta kjörtímabil.
Eftifarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fundað verði öllu jafna þrisvar í mánuði utan sumar- og jólafría, alla jafna ekki í þeim vikum sem sveitarstjórn fundar.
Fundir verða að jafnaði á mánudögum. Fjarfundir hefjast kl. 13:00 en tímasetning sem og staðsetning staðfunda verður ákveðin í hvert skipti.

Samþykkt samhljóða.

4.Skýrsla sviðsstjóra framkvæmda

Málsnúmer 202512240Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri framkvæmda, Hugrún Hjálmarsdóttir, kynnir fyrir nýju ráði umhverfissvið Múlaþings.

Anna Margrét J. Hjarðar, þjónustufulltrúi skipulagsmála, sem er jafnhliða því, fundarritari umhverfis- og framkvæmdaráðs, fer einnig yfir nokkur praktísk atriði er varðar fundi og þátt fundarritara í fundum ráðsins.
Lagt fram til kynningar.

5.Skýrsla slökkviliðsstjóra, 2026

Málsnúmer 202601061Vakta málsnúmer

Slökkvistjóri Múlaþings, Haraldur Geir Eðvaldsson, kynnir málefni slökkviliðsins fyrir nýju umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Lagt fram til kynningar.

6.Skýrsla hafnastjóra, 2026

Málsnúmer 202601063Vakta málsnúmer

Hafnastjóri, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, kynnir fyrir nýju umhverfis- og framkvæmdaráði verkefni hjá höfnum Múlaþings.
Lagt fram til kynningar.

7.Fundargerðir stjórnar Hafnasamband Íslands 2026

Málsnúmer 202601221Vakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar fundargerð 482. fundar stjórnar Hafnarsambands Íslands.
Lagt fram til kynningar.

8.Breyting á lóðarmörkum, Búland 10 og 12, Djúpivogur

Málsnúmer 202605123Vakta málsnúmer

Í upphafi máls vakti formaður Þórhildur Katrín Stefánsdóttir (ÞKS), athygli á vanhæfi sínu undir málslið 8. og gerði grein fyrir því. ÞKS fól varaformanni, Þóreyju Birnu Jónsdóttur (ÞBJ), fundarstjórn og bar ÞBJ málið upp til atkvæðagreiðslu og var það samþykkt samhljóða.
ÞKS vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Fyrir umhverfis- og framkvæmdaráði liggur erindi er varðar breytingu á núverandi lóðarmörkum milli Búlands 10 (L159321) og Búlands 12 (L159262) á Djúpavogi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að heimila breytingu á lóðarmörkum, þ.e. stækkun lóðar að Búlandi 12 og að stækka lóð vegna Búlands 10 í samræmi við umræður á fundinum og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

9.Umsókn um lóð, Bláargerði 51-53

Málsnúmer 202603030Vakta málsnúmer

Óveruleg breyting á deiliskipulagi íbúðarlóða á Suðursvæði á Egilsstöðum var grenndarkynnt með athugasemdafresti til og með 13. maí sl. Breytingin fól í sér sameiningu tveggja einbýlishúsalóða við Bláargerði 51 og 53 og heimild til byggingar fjögurra íbúða raðhúss.
Athugasemdir bárust og liggur fyrir ráðinu að taka afstöðu til þeirra.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að umsögn um athugasemdir og felur verkefnastjóra skipulagsmála að koma þeim á framfæri. Ráðið samþykkir óverulega breytingu á fyrirliggjandi deiliskipulagi svæðisins.

Samþykkt með 6 atkvæðum, 1 situr hjá (GBH) B-lista.

10.Umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá, Kollsstaðasel 14

Málsnúmer 202605216Vakta málsnúmer

Fyrir liggur merkjalýsing ásamt umsókn um uppskiptingu lands úr landeigninni Egilsstaðir 2 Kollsst.sel (L157596). Ný lóð verður 7613,5 m2 og fær heitið Kollsstaðasel 14.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umsóknina og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

11.Vinnuskóli 2026

Málsnúmer 202603159Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings leggur áherslu á að ungmenni sveitarfélagsins eigi kost á þátttöku í Vinnuskóla Múlaþings. Ráðið telur mikilvægt að tryggja jafnt aðgengi að sumarstörfum og þeirri reynslu, ábyrgð og samfélagsþátttöku sem vinnuskólinn veitir ungmennum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umsóknarfrestur rann út 17. maí sl. og ekki hefur verið tekið við umsóknum eftir þann tíma. Ráðið hefur ákveðið að opnað verði tímabundið aftur fyrir umsóknir í Vinnuskóla Múlaþings þannig að þeir einstaklingar sem misstu af umsóknarfresti fái annað tækifæri til að sækja um.

Ráðið felur starfsfólki umhverfissviðs að útfæra fyrirkomulag enduropnunar umsókna.

Ráðið vill jafnframt árétta það við foreldra barna, að umsóknarfrestur sé virtur.

Samþykkt með 6 atkvæðum, 1 situr hjá (ÞBJ) B-lista.

12.Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa Múlaþings - 14

Málsnúmer 2605001FVakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar fundargerð frá 14. afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa.
Lagt fram til kynningar.

13.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Múlaþings - 37

Málsnúmer 2605014FVakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar fundargerð frá 37. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa.
Lagt fram til kynningar.

14.Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa Múlaþings - 15

Málsnúmer 2606002FVakta málsnúmer

Lögð er fram til kynningar fundargerð frá 15. afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:12.

Getum við bætt efni þessarar síðu?