Fara í efni

Minjasafn Austurlands, afskráning kennitölu

Málsnúmer 202607084

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Múlaþings - 71. fundur - 09.09.2026

Fyrir liggur tillaga um afskráningu kennitölu Minjasafns Austurlands, kt. 630181-0119. Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti þann 12. mars 2025 samning milli Múlaþings og Fljótsdalshrepps um breytt rekstrar- og eignarfyrirkomulag safnsins og byggðaráð Múlaþings samþykkti nýjar samþykktir fyrir safnið þann 25. mars 2025 sem tóku gildi frá og með 1. janúar 2025.

Frá 1. janúar 2025 ber Múlaþing ábyrgð á rekstri safnsins og hefur tekið yfir eignir þess og skuldir. Safnið er rekið sem sérstök deild undir málaflokki 05350 í A-hluta Múlaþings og starfsemi þess heldur áfram innan sveitarfélagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Múlaþings samþykkir að kennitala Minjasafns Austurlands verði afskráð og felur sveitarstjóra að annast nauðsynleg samskipti og undirrita gögn vegna frágangs málsins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?