Málsnúmer 202607084Vakta málsnúmer
Fyrir liggur tillaga um afskráningu kennitölu Minjasafns Austurlands, kt. 630181-0119. Sveitarstjórn Múlaþings samþykkti þann 12. mars 2025 samning milli Múlaþings og Fljótsdalshrepps um breytt rekstrar- og eignarfyrirkomulag safnsins og byggðaráð Múlaþings samþykkti nýjar samþykktir fyrir safnið þann 25. mars 2025 sem tóku gildi frá og með 1. janúar 2025.
Frá 1. janúar 2025 ber Múlaþing ábyrgð á rekstri safnsins og hefur tekið yfir eignir þess og skuldir. Safnið er rekið sem sérstök deild undir málaflokki 05350 í A-hluta Múlaþings og starfsemi þess heldur áfram innan sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.