Fara í efni

Erindi frá Landsvirkjun um samfélagsvöktun í nærsamfélagi

Málsnúmer 202608056

Vakta málsnúmer

Byggðaráð Múlaþings - 201. fundur - 06.10.2026

Fyrir liggur erindi frá Landsvirkjun um samfélagsvöktun í nærsamfélagi. Fyrirtækið vinnur nú að því að móta hvernig samfélagsvöktun verður háttað á starfssvæðum þess á næstunni. Inn á fundinn undir þessum lið mættu Bjarki Þór Grönfeldt, Jóhanna Hlín Auðunsdóttir og Kári Freyr Lefever fyrir hönd Landsvirkjunar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Byggðaráð Múlaþings þakkar Bjarka Þór, Jóhönnu Hlín og Kára Frey fyrir góðar umræður og komuna á fundinn.

Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram með Landsvirkjun í samræmi við umræður á fundinum.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?