Fara í efni

Umsókn um framkvæmdaleyfi, endurheimt votlendis, Snotrunes 2 og Framnes

Málsnúmer 202608061

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 192. fundur - 14.09.2026

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi frá Landi og skógi vegna endurheimtar votlendis á jörðunum Framnesi (L157235) og Snotrunesi 2 (L157265) á Borgarfirði. Framkvæmdasvæðið er 45,5 ha. að stærð. Landið er að mestu skilgreint sem gott ræktunarland í nýju aðalskipulagi Múlaþings en landeigendur nýta það ekki til ræktunar eða matvælaframleiðslu. Mögulegt er að endurheimta landið til matvælaframleiðslu á nýjan leik og eru fyrirhuguð áform því metin í samræmi við landnotkun og ákvæði aðalskipulags.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við fyrirliggjandi gögn þegar samþykki allra landeigenda liggur fyrir.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?