Málsnúmer 202608061Vakta málsnúmer
Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.
Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi frá Landi og skógi vegna endurheimtar votlendis á jörðunum Framnesi (L157235) og Snotrunesi 2 (L157265) á Borgarfirði. Framkvæmdasvæðið er 45,5 ha. að stærð. Landið er að mestu skilgreint sem gott ræktunarland í nýju aðalskipulagi Múlaþings en landeigendur nýta það ekki til ræktunar eða matvælaframleiðslu. Mögulegt er að endurheimta landið til matvælaframleiðslu á nýjan leik og eru fyrirhuguð áform því metin í samræmi við landnotkun og ákvæði aðalskipulags.
Verkefnastjóri umhverfismála, Stefán Aspar Stefánsson, sat fundinn undir liðum 2.-3.
Verkefnastjóri skipulagsmála, Sóley Valdimarsdóttir, sat fundinn undir liðum 4.-10.
Starfsmaður heimastjórnar Fljótsdalshéraðs, Hlynur Jónsson, sat fundinn undir lið 11.