Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.
Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi frá Landi og skógi vegna endurheimtar votlendis á Melrakkanesi milli Hamarsfjarðar og Álftafjarðar. Um er að ræða svæði í landi Stekkavíkur, Hrafnatanga, Ósness, Selatanga og Þakeyrartanga. Til stendur að loka 8839 m af skurðum og framkvæmdasvæðin eru samtals 49 ha. að stærð. Jarðirnar eru í eigu og umsjá FSRE og falla undir átak Umhverfisráðuneytis um endurheimt á ríkisjörðum.
Svæðin falla undir annað landbúnaðarland og gott ræktunarland í nýju aðalskipulagi Múlaþings það hefur ekki verið nýtt til ræktunar frá árinu 2020. Mögulegt er að endurheimta landið til matvælaframleiðslu á nýjan leik og eru fyrirhuguð áform því metin í samræmi við landnotkun og ákvæði aðalskipulags.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við fyrirliggjandi gögn.
Samþykkt samhljóða.