Fara í efni

Umsókn um framkvæmdaleyfi, efnistaka, Kirkjubær

Málsnúmer 202608070

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 192. fundur - 14.09.2026

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni vegna fyrirhugaðrar efnistöku úr námu E47: Kirkjubær innar. Vinna á um 6000 m3 af efni í malarslitlag. Fyrirhuguð áform eru í samræmi við stefnu aðalskipulags.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi á grundvelli fyrirliggjandi gagna.

Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur undir skilmála FSRE um gott samráð og samstarf við landeigendur vegna framkvæmdarinnar og leggur áherslu á að þeim verði veitt fullnægjandi upplýsingagjöf og tækifæri til að koma að ábendingum varðandi framkvæmd, efnistöku, frágang svæðis og aðra þætti sem varða framkvæmdina.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?