Fara í efni

Umsókn um framkvæmdaleyfi, efnistaka, Hrærekslækur

Málsnúmer 202608168

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 192. fundur - 14.09.2026

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi frá Vegagerðinni vegna fyrirhugaðrar efnistöku úr námu E83/E226: Utan við Hrærekslæk. Vinna á um 2000 m3 af efni í malarslitlag. Fyrirhuguð áform eru í samræmi við stefnu aðalskipulags.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi á grundvelli fyrirliggjandi gagna.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?