Fara í efni

Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Koltröð 7 - Umfangsflokkur 2

Málsnúmer 202609010

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 192. fundur - 14.09.2026

Verkefnastjóri skipulagsmála situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir liggur umsókn um byggingaráform við Koltröð 7 (L157794) á Egilsstöðum. Um er að ræða timburhús á einni hæð sem á að endurbyggja á sökkli þess húss sem var rifið en það verður 24,5 m2 stærra.
Áformin eru í samræmi við aðalskipulag en ekkert deiliskipulag er í gildi af svæðinu. Fyrir ráðinu liggur að taka afstöðu til grenndarkynningar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og með hliðsjón af því að ekki er líklegt að áformin hafi veruleg grenndaráhrif, samþykkir umhverfis- og framkvæmdaráð að falla frá grenndarkynningu og vísar málinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni þessarar síðu?