Fara í efni

Húsnæði og aðbúnaður Stólpa

Málsnúmer 202609282

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð Múlaþings - 171. fundur - 19.10.2026

Fyrir liggur erindi frá Þroskahjálp á Austurlandi, dagsett 30. september 2026, þar sem óskað er eftir upplýsingum um framtíðaráform Múlaþings varðandi húsnæði og aðbúnað Stólpa. Félagið vekur athygli á mikilvægi þess að húsnæðið styðji við þarfir notenda og óskar eftir samtali um framtíðaraðstöðu starfseminnar.
Fjölskylduráð Múlaþings þakkar Þroskahjálp á Austurlandi fyrir erindið og tekur undir mikilvægi þess að húsnæði Stólpa mæti þörfum notenda. Unnið er að þarfagreiningu þar sem horft er til framtíðarþarfa starfseminnar og aðbúnaðar notenda. Fjölskylduráð felur sviðsstjóra velferðar að boða fulltrúa frá Þroskahjálp á Austurlandi, á fund ráðsins.

Málið er áfram í vinnslu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?