Fara í efni

Fjölskylduráð Múlaþings

171. fundur 19. október 2026 kl. 09:00 - 10:40 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Jónína Brynjólfsdóttir formaður
  • Herdís Magna Gunnarsdóttir varaformaður
  • Guðgeir Einarsson aðalmaður
  • Erlingur Hjörvar Guðjónsson aðalmaður
  • Jóhann Hjalti Þorsteinsson aðalmaður
  • Guðný Lára Guðrúnardóttir aðalmaður
  • Erla Gunnlaugsdóttir varamaður
  • Helgi Hlynur Ásgrímsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir sviðsstjóri menntunar og lýðheilsu
  • Anna Alexandersdóttir sviðsstjóri velferðar
  • Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldusviði
Fundargerð ritaði: Ingibjörg Jónsdóttir verkefnastjóri velferðar á fjölskyldusviði
Herdís Magna Gunnarsdóttir, varaformaður, fór með fundarstjórn.

1.Aðgerðaráætlun farsældarráðs 2027-2030

Málsnúmer 202610133Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til samþykktar aðgerðaáætlun Farsældarráðs Austurlands fyrir árin 2027-2030. Nína Hrönn Gunnarsdóttir, verkefnastjóri farsældarráðsins, kom inn á fundinn undir þessum lið og kynnti áætlunina.
Fjölskylduráð þakkar Nínu Hrönn fyrir kynninguna. Ráðið samþykkir aðgerðaáætlun farsældarráðs og vísar henni til sveitarstjórnar til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta 2027

Málsnúmer 202610065Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Stígamótum, dagsett 7. október 2026, þar sem óskað er eftir fjárstuðningi frá sveitarfélaginu til starfseminnar á árinu 2027.
Ráðið samþykkir að fresta afgreiðslu málsins þar sem frekari vinnslu er þörf í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar.

3.Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2027 fyrir Samtök um Kvennaathvarf

Málsnúmer 202610053Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Samtökum um kvennaathvarf, dagsett 6. október 2026, þar sem óskað er eftir stuðningi við samtökin fyrir árið 2027.
Ráðið samþykkir að fresta afgreiðslu málsins þar sem frekari vinnslu er þörf í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar.

4.Áherslur heimastjórna vegna fjárhagsáætlunar Múlaþings 2027-2030

Málsnúmer 202606136Vakta málsnúmer

Fyrir liggja áherslur heimastjórna í byggðakjörnum Múlaþings, sem lagðar eru fram inn í yfirstandandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2027-2030.
Fjölskylduráð vísar áherslum heimastjórna til sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu til umfjöllunar við yfirstandandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar. Jafnframt óskar ráðið eftir samtali við starfsmenn Umhverfissviðs Múlaþings um þau mál sem varða forgangsröðun viðhalds á eignum sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Húsnæði og aðbúnaður Stólpa

Málsnúmer 202609282Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Þroskahjálp á Austurlandi, dagsett 30. september 2026, þar sem óskað er eftir upplýsingum um framtíðaráform Múlaþings varðandi húsnæði og aðbúnað Stólpa. Félagið vekur athygli á mikilvægi þess að húsnæðið styðji við þarfir notenda og óskar eftir samtali um framtíðaraðstöðu starfseminnar.
Fjölskylduráð Múlaþings þakkar Þroskahjálp á Austurlandi fyrir erindið og tekur undir mikilvægi þess að húsnæði Stólpa mæti þörfum notenda. Unnið er að þarfagreiningu þar sem horft er til framtíðarþarfa starfseminnar og aðbúnaðar notenda. Fjölskylduráð felur sviðsstjóra velferðar að boða fulltrúa frá Þroskahjálp á Austurlandi, á fund ráðsins.

Málið er áfram í vinnslu.

6.Skýrsla sviðsstjóra fjölskyldusviðs

Málsnúmer 202512222Vakta málsnúmer

Fyrir liggja skýrslur sviðsstjóra menntunar og lýðheilsu og sviðsstjóra velferðar.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:40.

Getum við bætt efni þessarar síðu?