Fara í efni

Minnisblað Vegagerðarinnar vegna Seyðisfjarðarveg um Fjarðarheiði

Málsnúmer 202610112

Vakta málsnúmer

Heimastjórn Seyðisfjarðar - 73. fundur - 05.11.2026

Fyrir liggur til umfjöllunar minnisblað frá Vegagerðinni sem sent var innviðaráðuneytinu í byrjun árs vegna ástands vegar yfir Fjarðarheiði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Seyðisfjarðar beinir því til Byggðaráðs að taka minnisblað Vegagerðarinnar og eftirfarandi bókun til umfjöllunar og senda á viðeigandi ráðuneyti og stofnanir:
Seyðisfjarðarvegur (nr. 93) um Fjarðarheiði er hæsti fjallvegur á stofnvegakerfi Íslands sem tengir byggðir saman uppfyllir ekki þann öryggisstaðal sem gerður er til vega. Samkvæmt umferðaöryggisáætlun stjórnvalda skal fara fram heildstætt umferðaröryggismat allra stofnvega á gildistíma áætlunarinnar og hlýtur áhersla yfirvalda að vera á úrbætur á Fjarðarheiði þar sem Fjarðarheiðargöngum hefur verið slegið á frest um ótilgreindan tíma.

Heimastjórn krefst þess að sett verði sérstök fjárveiting í styrkingu og endurbætur vegarins. Vegurinn er missiginn, með kantskemmdum, burði er víða ábótavant og slitlag er lélegt. Seyðisfjarðarvegur er 6,5 - 7 m breiður, en vegur af þessari gerð ætti að vera 9 m breiður. Ljóst er að núverandi vegstæði fullnægir ekki kröfum um langhalla sem er um og yfir 10 prósent beggja vegna heiðarinnar. Mikil umferð er um veginn og minnt er á mikilvægi öruggs aðgengis að Seyðisfjarðarhöfn sem er ytri landamæri Schengen-svæðisins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?