Fara í efni

Heimastjórn Seyðisfjarðar

73. fundur 05. nóvember 2026 kl. 13:00 - 16:05 á skrifstofu sveitarfélagsins, Seyðisfirði
Nefndarmenn
  • Ívar Karl Hafliðason formaður
  • Hildur Þórisdóttir aðalmaður
  • Margrét Guðjónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Inga Þorvaldsdóttir fulltrúi sveitarstjóra
Fundargerð ritaði: Inga Þorvaldsdóttir fulltrúi sveitarstjóra

1.Minnisblað Vegagerðarinnar vegna Seyðisfjarðarveg um Fjarðarheiði

Málsnúmer 202610112Vakta málsnúmer

Fyrir liggur til umfjöllunar minnisblað frá Vegagerðinni sem sent var innviðaráðuneytinu í byrjun árs vegna ástands vegar yfir Fjarðarheiði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Seyðisfjarðar beinir því til Byggðaráðs að taka minnisblað Vegagerðarinnar og eftirfarandi bókun til umfjöllunar og senda á viðeigandi ráðuneyti og stofnanir:
Seyðisfjarðarvegur (nr. 93) um Fjarðarheiði er hæsti fjallvegur á stofnvegakerfi Íslands sem tengir byggðir saman uppfyllir ekki þann öryggisstaðal sem gerður er til vega. Samkvæmt umferðaöryggisáætlun stjórnvalda skal fara fram heildstætt umferðaröryggismat allra stofnvega á gildistíma áætlunarinnar og hlýtur áhersla yfirvalda að vera á úrbætur á Fjarðarheiði þar sem Fjarðarheiðargöngum hefur verið slegið á frest um ótilgreindan tíma.

Heimastjórn krefst þess að sett verði sérstök fjárveiting í styrkingu og endurbætur vegarins. Vegurinn er missiginn, með kantskemmdum, burði er víða ábótavant og slitlag er lélegt. Seyðisfjarðarvegur er 6,5 - 7 m breiður, en vegur af þessari gerð ætti að vera 9 m breiður. Ljóst er að núverandi vegstæði fullnægir ekki kröfum um langhalla sem er um og yfir 10 prósent beggja vegna heiðarinnar. Mikil umferð er um veginn og minnt er á mikilvægi öruggs aðgengis að Seyðisfjarðarhöfn sem er ytri landamæri Schengen-svæðisins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Tjaldsvæðið á Seyðisfirði

Málsnúmer 202609077Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað frá verkefnastjóra atvinnumála og sviðstjóra framkvæmda um framtíðarfyrirkomulag tjaldsvæðisins á Seyðisfirði. Byggðaráð vísaði málinu til umsagnar hjá heimastjórn á fundi sínum 03.11.2026. Alda Marín Kristinsdóttir situr fundinn undir þessum lið.
Heimastjórn þakkar Öldu Marín verkefnastjóra atvinnumála fyrir yfirferðina á tillögum á breyttu fyrirkomulagi á rekstri og staðsetningu tjaldsvæðisins.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn lýst vel á að rekstur og uppbygging verði boðin út til lengri tíma. Tryggja þarf að uppbygging og skipulag falli vel að umhverfi svæðisins eins og gönguleiðum og aðgengi að gufunni. Heimastjórn telur mikillvægt að allra leiða veriði leitað til þess að flutningur tjaldsvæðis á nýjan stað tefjist ekki. Heimastjórn felur starfsmanni að koma umsögn heimastjórnar til byggðaráðs.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Erindi, afsláttur á tengigjöldum fyrir fjarvarmaveitu á Seyðisfirði og útfærsla

Málsnúmer 202611004Vakta málsnúmer

Skúli Vignisson umsjónamaður Fjarvarmaveitu og Aðalsteinn Þórhallsson framkvæmdastjóri HEF veitna hafa óskað eftir að koma inn og kynna fyrir heimastjórn fyrirhugaðan afslátt á tengigjöldum fyrir fjarvarmaveitu Seyðisfjarðar og útfærslu þess efnis.
Heimastjórn þakkar starfsmönnum HEF veitna fyrir kynninguna. Fyrirhuguð er íbúakynning á tengiátaki fjarvarmaveitunnar á næstunni.

Lagt fram til kynningar.

4.Niðurgreiðsluhlutfall raforku í íbúðarhúsnæði í Múlaþingi

Málsnúmer 202604006Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá verkefnastjóra Eyglóar-verkefnisins hjá Austurbrú, þar sem farið er yfir niðurgreiðsluhlutfall raforku fyrir íbúðarhúsnæði í Múlaþingi. Byggðaráð vísaði erindinu til heimastjórnar Seyðisfjarðar með hvatningu um að það verði tekið fyrir á íbúafundi þar sem vakin verði athygli íbúa á þessum
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn Seyðisfjarðar tekur undir bókun byggðaráðs Múlaþings og mun kynna málið á opnum íbúafundi heimastjórnar sem fyrirhugaður er núna í nóvember mánuði.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Erindi, Saga og safn Fjarðaselsvirkjunar

Málsnúmer 202610236Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Þorvaldi Jóhannssyni dagsett 23.okt.2026. er varðar Fjarðarselsvirkjunina og framtíðarhorfur þess. Um er að ræða safn sem segir frá tæknilegu stórvirki og tímamótum í rafvæðingu Íslands.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Heimastjórn þakkar Þorvaldi Jóhannssyni fyrir erindið og er formanni og starsmanni falið að vinna málið áfram.

Málið áfram í vinnslu.

6.Minnisblað um hæfi fulltrúa og málsmeðferð þegar álitaefni koma upp

Málsnúmer 202609262Vakta málsnúmer

Fyrir liggur minnisblað um hæfi fulltrúa og málsmeðferð þegar álitaefni koma upp.
Lagt fram til kynningar

7.Áætlun eignamarka, jarðir í eigu Múlaþings

Málsnúmer 202610186Vakta málsnúmer

Fyrir liggja drög Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) að áætlun um eignamörk jarða á Norðaustur- og Austurlandi, þar á meðal fyrir 22 jarðir í eigu Múlaþings. Landeigendur hafa sex vikur, eða til 3. desember næstkomandi, til að koma á framfæri athugasemdum og er það gert í gegnum island.is.
Lagt fram til kynningar.

8.Skýrsla fulltrúa sveitarstjóra á Seyðisfirði

Málsnúmer 202601161Vakta málsnúmer

Fulltrúi sveitarstjóra fór yfir hin ýmsu mál og stöðu mála

Flutningur Wathneshúss: Undirbúningur fyrir flutning á Wathneshúsinu frá Hafnargötu 44 gengur mjög vel þó seinkun hafi átt sér stað vegna óviðráðanlegra atvika. Búið er að steypa sökkla og plötu og unnið að uppsteypu á veggjum á Ránargötu. Hvað varðar Wathnehúsið sjálft og svæðið þar í kring, þá er búið að hreinsa allt sem þarf að fara þar út og verið að vinna jarðvinnu utanhúss. Áætlað hafði verið að flytja húsið í október til nóvember þessa árs, en næst ekki fyrr en á fyrstu mánuðum næsta árs.

Bæjarskrifstofa, bókasafn í Herðubreið: Verkefnið „Herðubreið, Austurvegur 4 á Seyðisfirði, Bókasafn og bæjarskrifstofur“ er nú komið í útboð. Frestur til að skila inn tilboðsgögnum á skrifstofu Múlaþings Lyngási 12 Egilsstöðum, er til kl. 14:00 þriðjudaginn 24.nóvember næstkomandi.

Höfnin: Útblástursmælingar sem unnar voru af Verkfræðaskrifstofunni Vista ehf, stóðu yfir á höfninni í samtals 111 daga í sumar. Niðurstöður þeirra mælinga voru mjög jákvæðar og eru að virðist ekki að hafa áhrif á lífsgæði íbúa hér í firðinum. Stefnt er á að halda áfram þeirri vegferð sem hafin er í rafvæðingu hafnarinnar.

Menningarstyrkir: Seinni úthlutun
Frestur til að sækja um styrki í seinni úthlutun menningarstyrkja Múlaþings rann út 31. ágúst síðastliðinn. Til úthlutunar þetta haustið voru 2.200.000 kr. Hæstu styrkir námu 300.000. Menningarstyrkir sem tengdust Seyðisfirði og fengu úthlutun voru eftirfarandi:
Verkefni með tengsl við Seyðisfjörð voru:
Elísabet Maren Guðjónsdóttir
Nafn verkefnis: Auðlindir Austurlands. Úthlutun: 200.000 kr.
Juan Jose Ivaldi Zaldivar
Nafn verkefnis: EG ER SOMEONE: Andlitsmyndir á tónleikum. Úthlutun: 200.000 kr.
Klaudia Karolina Kaczmarek
Nafn verkefnis: Póstkort. Úthlutun: 150.000 kr.
Klaudia Karolina Kaczmarek
Nafn verkefnis: Vættir og fjör. Úthlutun: 190.000 kr.
Mark Peter Andrew Jackson
Nafn verkefnis: Gallerí Lokað. Úthlutun: 200.000 kr.
Þórhildur Tinna Sigurðardóttir
Nafn verkefnis: Dreymendur og draumgjafar - leitandi list á óvissu tímum - Haustsýning Skaftfell 2026. Úthlutun: 250.000 kr.

Stefnt er á að halda íbúafund mánudaginn 16.nóvember þar sem m.a. HEf veitur munu vera með kynningu á átaki í fjölgun notenda og framtíðaruppbyggingu fjarvarmaveitunnar. Allir að mæta


Fundi slitið - kl. 16:05.

Getum við bætt efni þessarar síðu?